Sælar. Ætla svona rétt að láta vita að ég er á lífi :)
Við vorum í sveitinni um helgina með öllum dýrunum þar. Stelpurnar léku sé að því að láta hanana (8 stk.) elta sig sem er algjört bíó. Hafið þig séð hana að harðahlaupum, það er brjálæðislega fyndið, alla veganna finnst mér það. Tvær merar komu í sveitina um helgina ásamt folaldi og verða á beit þar í sumar. Í júlí/ágúst bætist svo við eitt folaldið í viðbót, stelpunum finnst það ekki leiðinlegt. Stelpurnar verða svo hjá ömmu sinni í sveitinni út þessa viku.
Ég er búin að hafa það ágætt, nóg að gera í vinnunni. Lenti hinsvegar í smá veseni með bílinn í gær, gat ekki lokað #&%$"#$ rúðunni sem er búin að vera ótrúlega leiðinleg undanfarið, þannig ég varð að fara með bílinn á verkstæði til að láta þá hjálpa mér að loka rúðunni, ekki gat ég skilið bílinn eftir galopinn. Sú hjálp kostaði litlar 17.000 kr. og ég var bíllaus í morgun en ég á svo góða mömmu sem skutlaði mér og sótti mig í dag. Það er eins gott að ég geti lokað rúðunni núna. Það er ótrúlegt hvað viðgerðir á bílum eru dýrar. Nóg um það. Hlakka til að sjá ykkur næst.
Kveðja, Inga María
Engin ummæli:
Skrifa ummæli