Sælar
Ég held að það sé kominn tími á að ég láti heyra eitthvað frá mér :) Prófin eru BÚIN, jess. Er reyndar ekki viss hvort ég næ öllu, mér gekk ekkert ofvel,held ég en þetta er búið í bili og ég er svo ótrúlega fegin. Ég skellti mér í bæinn á laugardagskvöldið eftir Eurovision og lenti náttúrulega í leigubílaveseni eins og eflaust allir sem fóru niður í bæ. Það voru ótrúlega margir niðri í bæ. Það var samt rosalega gaman að fara aðeins út á lífið, mér finnst eins og það séu ár og aldir síðan ég fór niður í bæ.
Á morgun er hinn langþráði dagur að renna upp..... er að fara til Köben :) gaman gaman. Ég skal drekka nokkra öllara fyrir ykkur og njóta sólarinnar, fara í tívolíð og eitthvað fleira skemmtilegt. Ég kem svo heim á sunnudagskvöldið.
Vona að systir þín nái sér Auður mín :)
Hlakka til að sjá ykkur fljótlega
Kv. Inga María
Engin ummæli:
Skrifa ummæli