16.2.04

Sælar skvísur
Ég sé að ég er ekki nógu dugleg að kíkja á síðuna okkar, var fyrst að sjá saumaklúbbsboðið núna. Ég verð eiginlega að sjá til hvort ég kem eða ekki, ég er frekar tuskuleg núna, það er að hellast yfir mig kvef og hálsbólga og mér líður ekkert rosalega vel núna. Ég reyni að kíkja ef ég verð hressari, vil ekki vera að smita litla krílið. Ef ég kem ekki þá bið ég bara rosalega vel að heilsa ykkur öllum.

Ég reikna með að komast með í sumó :)
Ég held hinsvegar að við ættum að sleppa bílaleigubílnum, það má svo lítið út af bera til að kostnaðurinn verði of mikill, þ.e. ef einhver kemst ekki með af óviðráðanlegum orsökum þá sitji hinir uppi með kostnaðinn, það væri ósanngjarnt finnst mér.
Kv. Inga

Engin ummæli: