Sælar Stúlkur
Ég ætla að gera óformlega könnun á því hvaða dagur hentar fyrir saumó, en samt er ég ekki viss um að það sé góð hugmynd því það eru nokkrar sem ekki lesa þessa síðu held ég.
Alla vegana ætlaði ég að hafa hann í blálok mánaðarins en það mun ekki ganga upp hjá mér, svo var Inga að tala um að sumir ætluðu í sumarbústað í haustfríinu. Þannig að hann verður líklegast að vera nær "Júní" saumó en ég ætlaði.
Saumóinn verður að vera í næstu viku, svo ég var að spá í föstudaginn í næstu viku þann 21, hvernig er það?
Ég verð í ferð 23 - 27 og því ekki í bænum, svo er ég að reyna að komast í frí til þýskalands um mánaðarmótin, svo ég veit ekki hvort ég sé á landinu þarna um 28-31.
Hvaða dagur í næstu viku er hentugastur?
kv.
Doppa
3 ummæli:
Skiptir eiginlega ekki máli fyrir mig en þó helst ekki á föstudeginum. Við förum alltaf til mömmu með stelpurnar að horfa á Idol en ég kem samt ef það verður niðurstaðan :)
Ok Idol já já það þýðir að sumir aðrir koma ekki heldur, ég horfi ekki á það og fattaði þetta þá ekki. Hvað þá með fimmtud?
Fimmtudagur er í góðu lagi fyrir mig.
Skrifa ummæli