29.5.06

Kveðja frá Skagaströnd

uss elskurnar mínar það er bara ekkert að gerast á þessari síðu engin skrifar neitt orðið uss uss.
Jæja nú er ég flutt á Skagaströnd, svona mest megnis rúmmið mitt er komið hingað svo ég telst víst flutt.
Ragga og Steinar þessar elskur björguðu mér alveg. Ragga þurfti að sækja krakkana í sveitina og ég nýtti tækifærið og fékk hana til að draga kerru með öllu dótinu mínu. Svo fór hún í bæinn aftur svo hún tók kerruna með til baka. Og þá lenti ég ekki heldur í vandræðum með að fá einhvern til að bera dótið inn heldur. S.s. ég er búin að fá fyrstu heimsóknina mína ég skulda þeim sko grillveislu þegar þau koma í alvöru heimsókn einhverntímann í sumar.
Röggu varð á orði að þessi kerra væri bara eins og félagsheimilið í "með allt á hreinu" það voru orð að sönnu, alveg ótrúlegt hvað okkur tókst að taka með okkur.
Ég var hins vega soldið einmana í gærkvöldi, dauðþreytt og vildi glápa á sjónvarpið en gat það ekki. Ég næ engu íslensku sjónvarpi, bara einhverjum útlenskum stöðvum og það ílla. Svart hvítt og óskýrt, ef ég næ myndinni nokkurn veginn áhorfanlegri þá fer hljóðið og öfugt. Það er víst eitthvað kapalkerfi í gangi hérna og ég held að gamli imbakassinn minn sé bara of gamall til að móttaka merki kapalkerfisins. Allavega það kemur maður á morgun sem kýkir á þetta. Í gærkvöldi hafði ég ekki heldur neitt netsamband. Mér leist ílla á það, í dag reyndi ég aftur að fá netsamband og það tókst. Eins gott að ég fékk mér fartölvu áður en ég kom hingað. Ég þarf allavega að vera í netsambandi ef ég er ekki í annarskonar sambandi við umheiminn.
Ég kýkti á sjónvörp í kaupfélaginu áðan en það verður að segjast að ég tímdi því ekki alveg að kaupa sjónvarp þar. Ég kýki í Sjónvarpsmiðstöðina þegar ég kem heim um helgina. Og þá verð ég að kýkja á bíla líka, verður að vera fjórhjóladrifinn og með kúlu. Það er augljóst, ég er samt ekki að leita mér að jeppa, þetta eru nún engir fjallvegir hingað. En hver veit.
Ég er smám saman að koma mér inn í vinnuna, en það er mikið að læra á allt kerfið.
Ég er að spá í að skrá mig í MA nám í stjórnsýslu í HÍ í fjarnámi þar ætti ég allavega að læra á allt stjórnsýslukerfið. Það er fjarkennslubúnaður í næsta húsi við mig þar sem allir íbúar Skagastrandar hafa frjálsan aðgang svo ég get kannski nýtt mér það.

Ég á nú að halda saumaklúbb í Júní, eru einhverjar til í að skreppa norður í eina helgi í saumó til mín? Hvernig væri það ? Eru einhverjar að fara í frí á norðurlandi þetta sumarið? Ég geri ráð fyrir því að Ragga verði hérna á ferðinni með einbýlishúsið í eftirdragi eitthvað í sumar en hvað með ykkur allar hinar? Látið mig nú vita ef þið eruð eitthvað á ferðinni á svæðinu svo ég geti nú kannski hitt á ykkur.
kv.
Auður

9.5.06

Hittingur fljótlega?

Nú fer þessari próftörn að ljúka hjá mér, klára ekki á morgun heldur hinn.
Ég væri sko alveg til í fara hittast fljótlega. Sá í síðustu færslu að Sirrý væri að hugsa um að fara að halda saumó, líst rosalega vel á það. Hlakka til að hitta ykkur.
Kv. Inga

4.5.06

Blönduós

Hæ hæ
Ég þarf að skreppa á Blönduós á morgun, legg af stað um 9 leitið til að vera mætt í atvinnuviðtal kl 12. Viðtalið er vegna starfs sem félagsmálastjóri á Blönduósi og Skagaströnd. Ég er á fullu við að stytta buxur og ermar (í höndunum) á buxnadragtinni sem ég keypti mér í Glasgow svo ég komi nú vel fyrir á morgun. Svo það er bara aldrei að vita nema að ég sé að flytja norður fljótlega. Sari mágkona mín kemur með mér svo mér leiðist ekki á leiðinni.
Annars hef ég aðrar fréttir að færa þegar næsti saumaklúbbur verður, bara svona til að vekja forvitnina hjá ykkur he he. Segi ekki neitt fyrr en ég hitti ykkur .
Ég talaði við Sirrý í gær og hún telur líklegt að það verði saumó í næstu viku. Hún á reyndar saumó í hinum klúbbnum líka í Maí svo það er slatti að gera hjá henni.
Mútta er í New York núna og fer til Flórída á morgun, svo ég get farið til Blönduóss á bílnum hennar, sem er mjög gott því ég er á hálf ónýtum dekkjum.
Bið að heilsa ykkur
kv.
Doppa

28.4.06

sælar stúlkur

hæ hæ
Ég er komin aftur eftir skemmtilega ferð. Það var ekki svo mikið mál að venjast því að vera öfugu megin á veginum, það vill svo til að umferðarmenningin á Bretlandi er á háu stigi, mikil tillitsemi, bílum hleypt fram fyrir, aldrei sá ég neinn svína fyrir annan, þetta sýnir manni hversu mikið við gætum lært af öðrum hvað umferðina varðar. Það eru nánast hvergi umferðarljós, hins vegar er mikið um hringtorg, sem ég hef ekki verið svo hrifin af hingað til , en þau virka mjög vel þarna. Þess utan er allt vel merkt og þannig kemst maður alltaf þangað sem maður vill.
Sem sagt vel heppnuð ferð.

19.4.06

Gleðilegt SUMAR

hæ hæ
Mig langaði bara að óska ykkur gleðilegs sumars. Ég veit að sumir eru spenntir að prófa nýja hjólhýsið sitt í sumar. Ég er spennt yfir ferðalaginu mínu, á föstudag flýg ég til Glasgow. Ég gerist svo djörf að leigja bílaleigubíl fyrir vikuna og þarf því að læra að keyra öfugu megin. Ég verð reyndar hjá Lindu vinkonu minni en ég verð allavega að keyra frá flugvellinum til hennar..... Gvöð má vita hvernig það gengur hahahah.
Ég óska ykkur öllum gleðilegs og góðs sumars.

15.4.06

Páskakveðja

Sælar stelpur


Langaði að óska ykkur


Gleðilegra páska




Er á leiðinni út úr bænum á morgun þannig ég á örugglega eftir að gleyma þessu þá. Ég er að fara í sveitina til að læra, kem aftur í bæinn 24. apríl. Hlakka til að sjá ykkur.




Kveðja, Inga María

9.4.06

Apríl saumó

Ég verð í Glasgow 21-28 apríl, þannig að fyrir páska eða um páskana er kannski best. Líka vegna Ingu sem er í burtu vikuna eftir páska líka. Ég verð reyndar að vinna mán, þri og miðvikudagskvöld. Þannig að ég get ekki mætt fyrr en eftir kl 10 þau kvöld.
Hvað segir þú nú Ragga mín, ertu að finna tíma?
kv.
Auður

2.4.06

afmælin okkar

Inga er svo dugleg að setja upplýsingar á þessa síðu okkar. Nú eru afmælisdagarnir komnir inn, og ég verð að viðurkenna að ég hafði aldrei pælt í því fyrr að Inga er sú eina af okkur sem á afmæli ein. Þ.e.a.s. allar aðrar deila mánuði með einhverri. Svo Inga á enga afmælismánaðarsystur í saumaklúbbnum. uss verðum við ekki að bæta úr því og bæta einni við í klúbbin sem er fædd í júní líka hehe. Jæja Inga mín nú ert þú búin að sjá til þess að við sjáum á þessari síðu hvenær þú átt afmæli, sem er eins gott. Því undanfarið hefur þú sett inn afmæliskveðjur til allra, alltaf með allt á hreinu.

Ég var í Gullfoss í þessum norðangarra í dag, það var nú soldið kalt svo ég var svakalega happy með fóðruðu buxurnar mínar og almennt það að vera velklædd á meðan kanarnir voru svona frekar ílla klæddir á heildina litið. Eins og við segjum oft við þessa túr hesta, það er ekki til vont veður bara illa klætt fólk he he. Í næstu viku fæ ég svo nýju 66° peysuna mína með nafninu mínu ísaumuðu .

27.3.06

Skanni

hæ hæ
Ég er að fara í gegnum allar gömlu ljósmyndirnar mínar og raða inn í albúm. Mér flaug í hug að það gæti verið góð hugmynd að skanna inn allar flimurnar mínar til að eiga allt á stafrænu formi. Ég kaupi mér þá auka harðann disk (útværan) fyrir afrit svo að allt sé öruggt. En ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta hér er sú að ég ætlaði að athuga hvort einhver af ykkur hefur aðgang að slíkum skanner, eða viti hvort hægt sé að leigja svoleiðis, því það er aðeins of dýrt að kaupa þetta fyrir þetta eingöngu, maður notar skanna svo sjaldan.
Hvað segja tölvufræðingarnir okkar, Bryndís og Inga?

kv.

26.3.06

Afmælisbarnið Sirrý

Til hamingju með afmælið Sirrý.
Vona að þú hafir átt góðan dag.
Afmæliskveðja,
Inga María

24.3.06

Fótbolti

hæ hæ
Ég get lofað ykkur því að ég fylgist ekki með boltanum, en í morgun sá ég fyrirsögn í fréttablaðinu sem fékk mig til að lesa aðeins meir um fótboltaakademíu KR. Bara út frá samræðum sem við Björk áttum út af framtíðarhorfum Ásu í boltanum. Mér hætti að lítast á blikuna þegar mér sýndist þessi akademía eingöngu vera fyrir strákana... þvílíkir asnar... allavega var talað um strákana þetta og strákana hitt en ekkert minnst á stelpur í þessu viðtali.
Fuss um svei

20.3.06

Mars - saumó

Hæ pæjur og takk fyrir síðast.
Ég var að spekúlera að halda saumó þriðjudaginn 28. mars.
Hlakka til að sjá ykkur ALLAR þá ;)
Kveðja,
Inga María

16.3.06

David Hasselhoff

Mér er gjörsamlega fyrirmunað að skilja hvernig hann gat öðlast þvílíkar vinsældir í Þýskalandi á sínum tíma. En þetta er víst hluti þýskrar menningar sem ég á aldrei eftir að skilja. Það er ákveðin stéttaskipting í þjóðfélaginu og menningu þýskalands og eins og vinsældir hans og fleiri (ótrúlega margt skrýtið sem verður vinsælt þar) sýna þá er mikil gjá á milli stétta þegar kemur að menningu almennings (popular culture).
Ég varð líka mjög hissa þegar ég komst að því að hann væri kani og enginn þjóðverji, ég hélt lengi að hann væri þjóðverji að uppruna, sem hefði ungur flutt til amríkunnar, en nei, ekkert þýskt blóð hjá honum þótt nafnið fái mann til að halda það.
Hvað svo sem því líður er þetta fyndið vídeo... ég held það hljóti að vera í það minnsta 10 ára gamalt.

14.3.06

Afmælisbarnið Ásta

Innilega til hamingju með daginn.
Vona að þú eigir góðan dag.
Afmæliskveðja,
Inga María

10.3.06

Leikskólabörn

Ég fékk sendann link með myndbandi af leikskólabörnum að syngja "til hamingju Ísland"
mjög fyndið en um leið .................

9.3.06

Febrúar saumó á föstudag

hæ hæ
Í gærkvöldi fékk ég sms frá Guðrúnu, hún býður til saumó á föstudag. Jippý þá förum við að hittast á ný. Ég kemst og vonandi sem flestar af ykkur hinum, þrátt fyrir Idol??
kv.
Doppa

p.s. Inga, mér sýnist textinn hennar Bjarkar vera kominn inn, en hjá þér?

8.3.06

Mars saumó

Hæ stelpur
Ég á víst að halda saumó í mars og ætla að standa við það :) Ég býst samt við því að ég haldi hann seinni partinn í mars, kannski í næst síðustu eða síðustu vikunni - það er svolítið mikið að gera þessa dagana. Guðrún fær þá tækifæri til að halda febrúarsaumóinn sinn áður ;)
Ég sendi henni SMS um daginn þannig hún veit að hún átti febrúar. Endilega ef þið heyrið í henni minnið hana á þetta ef hún skyldi vera búin að gleyma.

Eitt finnst mér skrítið ég sé ekki síðustu færsluna á netinu frá Björk, sé hana bara þar sem við búum til nýtt skjal, furðulegt.
Bæ í bili

sumó saumó saumó

hæ hvenær verður saumó? ég er farin að sakna ykkar
kv Bjork

28.2.06

Afmælisbarnið Bryndís

Til hamingju með afmælið Bryndís. Vona að þú eigir góðan dag.
Afmæliskveðja,
Inga María

22.2.06

hvernig saumaklúbbar breytast

hæ hæ
ég rakst á eftirfarandi í blogginu hennar Nönnu Rögnvalds hjá Gestgjafanum og set hér inn til umhugsunar hehe.


"Þegar saumaklúbburinn minn fór að hittast fyrir meira en aldarfjórðungi töluðum við um stráka og djamm og námið. Það þróaðist fljótt yfir í óléttur og fæðingarsögur, vinnu, íbúðakaup, barnauppeldi, eldhúsinnréttingar, svo starfsframa, skilnaði, unglinga ... Núna tölum við um barnabörnin, gráu hárin, breytingarskeiðið, þvagleka, fjarsýni, lífeyrissparnað, elliheimili ...Við, miðaldra? Tjaaa ...Það er samt ekki hlegið neitt minna í saumaklúbbnum en áður. Meira ef eitthvað er.
dæsti Nanna"