13.11.05

Takk fyrir mig

Kærar þakkir fyrir mig Auður.
Ég skemmti mér rosalega vel í gær og ég vona að þú hafir gert það líka. Maður er svona pínu dofinn í dag en það er alveg þess virði. Sjáumst.
Kveðja,
Inga María

11.11.05

party party

Nei Inga mín
Síðan dugar ekki til, ég hringdi svo í hinar og staðan er sú að
Þú, Björk, Ragga, Guðrún og Sirrý koma, Ásta kemst ekki og Bryndís kannski og þá seint.
Annars eru nú líka fleiri því þetta er ekki bara Saumó heldur er þetta afmælisdjamm. En þó eingöngu kellingar. Ef þið hafið einhverjar óskir varðandi tónlist, þá takið hana bara með.
kv.
ein í stuði

PARTÝ

Hæ
Ég er sko komin í djammgírinn, verður ekki örugglega PARTY???? Klukkan hvað eiga svo herlegheitin að byrja ca. Hlakka til að hitta ykkur í þessum gír - langt síðan við höfum dottið almennilega í það saman!!!

Það eru engin almennileg viðbrögð við partýinu á þessari bloggsíðu ;( hefurðu eitthvað heyrt í hinum skvísunum? Ég hélt að við værum svoddan partyanimal í þessum saumaklúbbi ;) en við verðum a.m.k. fjórar og það verður sko rosa stuð hjá okkur, ekki satt
Stuðkveðjur,
Inga

9.11.05

PARTY

Ég óttaðist að það gæti farið svo að ekkert yrði úr þessu þar sem ég varð slöpp í gær, hélt ég væri að fá flensu. Núna er ég nokkuð viss um að þetta er ekki flensa bara helv. nefkvef með ennis- og kinnholubólgum sem ég er nokkuð viss um að ég þoli nú. Ég ætla að hafa teiti á laugardag sama hvað !!!
kv.
Auður

7.11.05

Afmæli

hæ hæ
ég er að hugsa um að halda Partý á laugardaginn næsta því ég á afmæli og þá verður maður að gera eitthvað skemmtilegt, hvað segið þið, eru þið til í Kellingapartý??
kv.
Auður

6.11.05

Eitthvað að frétta stelpur?

Sælar stelpur!

Hvað er að frétta? Hvernig var í bústaðinum Ragga og hvernig var úti hjá þér Auður? Ég trúi ekki öðru en það hafi verið rosa gaman hjá ykkur báðum. Ég sit núna yfir tölvunni og er að reyna að vinna í enn einu verkefninu mínu og er aðeins að eyða tímanum í eitthvað annað ;) Þessi törn hjá mér verður væntanlega búin nk. föstudag, jibbíí - get ekki beðið. Hlakka til að heyra frá ykkur stelpur. Vona að Ásta hafi séð að hún á saumó næst annars verðum við bara að meila á skvísuna.
Kv. Inga

19.10.05

Ég var búin að sjá þetta

Ég var búin að sjá þetta áður Inga, ég var á báðum áttum hvort ég ætti að hlæja eða gráta.
Dæmi hver fyrir sig, þetta skýrir sig sjálft þó að ekki kunni maður tungumálið, það er það merkilega við þetta video. En ég veit ekki hvort að um einelti var að ræða, ég skildi sem svo að um þátt um læknamistök hafi verið að ræða.

Boemerang

Stelpur þið verðið að kíkja á þetta. Þetta er bæði það fyndnasta og það allra, ALLRA VANDRÆÐALEGASTA sem ég hef séð!

Þetta er myndbrot úr "hvar eru þeir núna" þætti, svona belgískur Sirrý/Oprah þáttur. Þáttastjórnandinn er að taka viðtal við mann sem hefur verið lagður í einelti frá því hann var lítill og flestir í salnum hafa við sama vandamál að stríða. Þáttastjórnandinn var rekinn eftir þáttinn því hann þótti ekki taka málefnið mjög alvarlega!!!

saumó á laugardagskvöld

hæ hæ
Þá er það loksins komið, ég get haldið saumó á laugardagskvöld. Það er eina kvöldið sem ég get það það sem eftir lifir mánaðar (nema í kvöld en það er of stuttur fyrirvari).
Allavega helmingur getur mætt, ein kemst ekki og er ekki búin að heyra í þremur.
ss. sjáumst á laugardagskv.

17.10.05

Október saumó II

Jæja varðandi það hvenær ég get haldið saumó, ég stakk upp á föstudag en ef þið hafið kýkt á kommentin þá eru Inga og Barbie búnar að minna mig á Idolið, s.s. föstudagur er ekki góður.
Þá stakk ég upp á fimmtudag, en nú var ég að fatta að ég er boðin í boð hjá bláa lóninu á fimmtudag. Hvernig litist ykkur á laugardags eða sunnudagskvöld?

Sælar aftur

Hæ aftur!

Loksins er ég aftur komin með aðgang að blogginu eftir langt hlé. Takk Inga mín fyrir að redda mér.

Sorrý stelpur að ég hélt ekki saumó í september, hafði því miður bara alls ekki hugmynd að það væri minn mánuður. Eflaust hefur einhver gaukað þeim upplýsingum að mér en þær hafa þá bara ráfað eitthvað í burtu.

Á ég ekki bara að halda saumó fljótlega? Ég er alveg til í að skella einum svona inn á milli ef þið eruð til í að kíkja á Skagann.

Bæjó,
Sirrý

13.10.05

októbersaumó??

Sælar Stúlkur
Ég ætla að gera óformlega könnun á því hvaða dagur hentar fyrir saumó, en samt er ég ekki viss um að það sé góð hugmynd því það eru nokkrar sem ekki lesa þessa síðu held ég.
Alla vegana ætlaði ég að hafa hann í blálok mánaðarins en það mun ekki ganga upp hjá mér, svo var Inga að tala um að sumir ætluðu í sumarbústað í haustfríinu. Þannig að hann verður líklegast að vera nær "Júní" saumó en ég ætlaði.
Saumóinn verður að vera í næstu viku, svo ég var að spá í föstudaginn í næstu viku þann 21, hvernig er það?
Ég verð í ferð 23 - 27 og því ekki í bænum, svo er ég að reyna að komast í frí til þýskalands um mánaðarmótin, svo ég veit ekki hvort ég sé á landinu þarna um 28-31.
Hvaða dagur í næstu viku er hentugastur?
kv.
Doppa

12.10.05

Takk fyrir í gær

Hæ og takk fyrir í gærkvöldi
Mér fannst rosa gaman að fá ykkur. Það var fámennt en mjög fínt - því meiri afgangar handa mér til að jappla á með lærdómnum :)

Sirrý er komin með nýtt e-mail: sirryhelga@simnet.is

Úps. gleymdi að segja ykkur frá Guðrúnu að hún verður með Volare kynningu á föstudagskvöldið n.k., veit ekki klukkan hvað, þið hafið bara samband við hana ef þið hafið áhuga. Þá er það komið til skila :)

7.10.05

Mannanöfn

ég rakst á eftirfarandi pistil á einhverju bloggi og fannst afskaplega fyndið.

"Nú er til dæmis hægt að setja saman fullt af íþróttastjörnum: Ríó Ferdinand, Edvin Móses, Martin Max, og Patrik Bergur, eða tónlistarhetjur á borði við Lars Ulrich, Þorra Amos og Marvin Geir. Ekki má gleyma kvikmyndastjörnum svo sem Richard Príor og Alexíus Baldwin. Fyrir matarspekinga vil ég benda á Parmes Andra, og drykkjumenn, Per Nóa. Allt nöfn úr mannanafnaskrá. Eitt af nýju nöfnunum er Elvin en það hlýtur að vera prentvilla og á örugglega að vera Elvis, kónginum til heiðurs sjötugum.Atlas Tindur og Sigur Bogi eru nýjungar, en möguleikarnir eru endalausir og ekki lengur bundnir við Leif Arnar og Brand Ara. Ég nefni nokkur nöfn til hagræðis fyrir nýorðna og verðandi foreldra sveinbarna: Ögri Fólki og Þjálfi Víðar (hefði passað á Gauja Þórðar), Mars Ari (fyrir dansáhugamenn), Ölver Loki (fyrir bindindispostula), Beitir Vopni og Kaldi Karl (fyrir handrukkara), Hafnar Brimi (fyrir sjómenn), Haki Skafti (fyrir grafara), Dan Kort (fyrir verslunarmenn), Hjarnar Viðar og Saxi Lýtingur (fyrir lækna), Skefill Skeggi (fyrir rakara), Gerðar Dómald (fyrir samningamenn), Ómi Hreinn (fyrir tónlistarmenn), Hraunar Bolli (fyrir jarðfræðinga), Búi Engill (fyrir presta), Skíði Skúta (fyrir útivistarfólk), Neptúnus Geisli (fyrir stjörnufræðinga), Finn Ástvin (fyrir björgunarsveitarmenn), Stormur Austar (fyrir veðurfræðinga) Gutti Heimir (fyrir aðdáendur Stefáns Jónssonar) og loks Viðar Brestir (fyrir smiði). Löggild drengjanöfn alltsaman.Oft hef ég varið stúlkunafnið Kría sem sumum finnst fáránlegt en mér alls ekki. Það er samt hægt að leika sér með þetta og búa til samsetningar að gamni sínu, en ekki rakst ég á kunnugleg nöfn úr erlendum íþróttum, menningu og listum við lauslega athugun á stúlknanöfnunum.Menn þekkja núorðið fjölda dæma um skemmtilegar samsetningar, Líf Vera, Björt Nótt og þess háttar og því e.t.v. í bakkafullan læk að bera. En stundum virðist eins og heildarhljómur og merking samsetningarinnar gleymist: t.d. Von Dara, Agna Rögn, eða Odda Tala (fyrir stærðfræðinga), Mýra Borg, Brák Arey eða Snorra Þula (fyrir Borgfirðinga og Mýramenn), Vanda Málfríður (fyrir sálfræðinga), Munda Boga (fyrir veiðimenn), Birta Mörk (fyrir íþróttafréttamenn), Tea Sía, Sólbrún Bera, Karla Þrá, Gógó Mey, Sölva Tína, Selja Sigdóra, Rán Dýrborg, Ylja Rún, Njóla Þúfa. Nú er nóg komið en allt beint úr skránni."

6.10.05

Október saumó

Sælar stúlkur
Nú verðum við að fara að herða á okkur ef við viljum halda alla klúbbana sem eru eftir á árinu. Ég á október, en nú heldur Inga Júní í næstu viku svo ég held minn frekar undir lok mánaðar til að það sé smá tími á milli. Ég þarf að finna út úr því hvenær besti tíminn er en geri ráð fyrir síðustu vikunni í okt.
sjáumst á þriðjudag hjá Ingu
kv.
doppa
p.s. flott viðbót Inga einmitt það sem við þurftum.

5.10.05

Upplyfting

Hæ
Ég tók mig aðeins til og fór að leika mér aðeins með bloggsíðuna okkar, bjó til lista yfir hvenær hver á að halda saumó. Vona að þetta veiti okkur smá aðhald og við gleymum ekki hvenær við eigum að halda saumó. Síðan var ég smá að leika mér, vona að ykkur líki ; )
Sjáumst vonandi á þriðjudaginn.

4.10.05

saumó næsta þriðjudag

hæ hæ
ég verð að vinna á Hagstofunni næsta þriðjudag, en ég myndi þá koma eftir 10, ef ég má koma svo seint.
Ég er alfarið komin á gamla bílinn henna mömmu, því hún var að kaupa sér nýjann.
kv.
doppa

Saumó - klukk

Hæ
Loksins ætla ég að standa við að skrifa upp einhverjar 5 staðreyndir um mig. Ég ætlaði reyndar að gera það á föstudaginn en þá voru einhverjar viðgerðir á blogger.is þannig ekki tókst það þá svo einhvernveginn dróst þetta, skil ekkert í þessu ;)

1. Ég fór á tvenna tónleika í sumar, U2 og Duran Duran og er rosalega ánægð með að hafa drifið mig :)
2. Ég er algjör bruðlari, er algjör snillingur að eyða í ekki neitt!
3. Ég hlakka alltaf til húsmæðraorlofsins með saumó því ég elska að borða, drekka, slappa af í góðra vina hópi :)
4. Ég fékk hestadellu þegar ég var smápæja og hef hana ennþá. Ég á þó ekki hest en ætla að bæta úr því eftir nokkur ár því þá er stefnt á að kaupa hest :)
5. Ég er með algjöra kóngulóafóbíu, finnst þær ógeðslegar.

Jæja þetta hafðist en ekki er nú hugmyndaflugið öflugt. Nú skora ég á ykkur hinar að koma með nokkrar staðreyndir um ykkur stelpur, þið hafið nú eflaust meira hugmyndaflug en ég. Ég set á heimasíðuna mína hverja ég klukkaði :)

*** Saumó ***
Ég var að spá í þetta með saumó, hvernig líst ykkur á saumó næsta þriðjudagskvöld hjá mér? Ég verð eiginlega bara ákveða einhvern dag því annars dreg ég þetta örugglega fram á næsta ár, nei djók. Endilega látið mig vita, ég sendi svo SMS fljótlega ef ég fæ engin viðbrögð ;)
Er orðin mjög spennt að sjá nýju klippingarnar, kannski fleiri en Doppa og Barbie hafi átt eitthvað við hárið á sér.
Kv. Inga

2.10.05

message to barbie

hæ hæ
Það er barasta engin hreyfing hérna á þessari síðu hvað svo sem maður gerir til að hrista upp í ykkur. Nú jæja það er alltaf skemmtilegast að hittast, og nú er september liðinn og enginn saumó eða hvað ??
Barbie las á blogginu mínu um klippinguna mína og er svo forvitin að hún vill sjá mynd. Núna neita ég bara alfarið að setja mynd inn, ég verð að halda spennunni. (þ.e.a.s. spenning ekki hárspennu he he) Svo að við hittumst kannski fljótlega, ef einhver er að drepast úr spennu eða forvitni. Ég skipti nú ekki svo oft um hárstíl eða hvað.
Hvað segði þið um það að fara að hittast hver var næst með saumó, Sirrý eða hvað allavega er ég farin að sakna þín alveg ægilega Sirrý mín mér finnst eins og það sé komið heilt ár síðan ég sá þig síðast.
kv.
Doppa

21.9.05

þetta er til þess að fá ykkur til að skrifa eitthvað KLUKK

Klukk klukk
Jæja Linda klukkaði mig svo nú verð ég að svara með einhverjum 5 staðreyndum um sjálfa mig.

1. Ég á erfitt með að tala um sjálfa mig, vissi hreinlega ekki hvað í ósköpunum ég ætti að skrifa niður hér, er laumu feimnispúki.
2. Það þurfti 6 ár til að rétta tennurnar mínar, ég var svo óheppin að þær skekktust aftur svo að ég fékk teina á ný ári eftir að ég losnaði við þá, og þurfti því að nota góm til tvítugs.
3. Það var fleira í mínu lífi sem ég þurfti að ganga í gegnum tvisvar svo sem eins og bílprófið, ég féll á hringtorginu á gatnamótum Snorrabrautar/Hringbrautar. Mér til mikils léttis var þetta tákn niðurlægingar minnar fjarlægt stuttu seinna.
4. Fyrsti bíllinn minn var Mazda 363 árgerð ?78, við kölluðum hann Fredda fretara vegna aumingjalegrar flautu. Hann var gjöf frá systur minni og mági stuttu eftir bílpróf. Við upplifðum nokkur ævintýri saman svo sem eins og aukaflautur sem byrjuðu að flauta um miðjar nætur á rúntinum eða það að bensíntankurinn féll undan bílnum á Miklubrautinni á háannatíma.
5. Ég hef ekki átt bíl síðan 1989.

Ég get ekki annað en klukkað saumaklúbbinn og þar með talið Ingu Maríu.
Sem þýðir að nú megið þið rugla einhverjum 5 staðreyndum um ykkur hér á síðuna, Inga bíður betri tíma en hvað með ykkur hinar?