gaman að frétta af ykkur
innilega til hamingju Ragga mín þú stendur þig alltaf svo vel ;)
góður brandari Auður við ættum kanski að skella okkur í golf:)
jæja núna á að taka á því ég byrjaði í dag hjá Báru í leikfimi níu vikna námskeið farin að hugsa hvað ég borða og ég held að þetta verði bara gaman allavega líður mér stórvel eftir fyrsta tíman
það verður aðeins bið á partíinu ég er að bíða eftir því að bræður mínir leggi parketið sem ég keypti svo er ég ný búin að mála stofuna og ganginn og þetta er bara mjög huggulegt finnst mér
ég er búin að vinna í eina viku eftir 6 vikna frí sem var bara mjög fínt og rólegt
jæja bið að heilsa öllum
kv Björk
30.8.04
Golfslys
Tvær vinkonur voru saman í golfi þegar önnur varð fyrir því óhappi að hitta
kúluna illa í upphafshöggi og horfði með skelfingu á eftir kúlunni sem
stefndi á hóp karlmanna. Kúlan lenti inni í miðjum hópnum og einn maðurinn
féll til jarðar haldandi báðum höndum á milli fótanna, greinilega
sárþjáður.
Vinkonurnar hlupu til mannanna og þegar þær komu að hópnum hélt maðurinn
enn
höndunum á milli fótanna.
Sú sem hafði slegið kúlunni baðst afsökunar og bauð fram aðstoð. Maðurinn
vildi ekki að svo stöddu þiggja aðstoð og sagðist jafna sig eftir smá
stund.
Konan þráðist við, sagðist vera sjúkraþjálfari og vildi fá að þreifa aðeins
á manninum. Maðurinn lét tilleiðast og fékk hún hann til að leggjast á
bakið
og tók hendur hans frá og renndi buxnaklaufinni niður og byrjaði að nudda
hann rólega. Eftir smástund spurði hún manninn hvernig honum þætti þetta.
Maðurinn svaraði því til að honum þætti þetta mjög gott en hann væri enn að
drepast í þumalfingrinum.

27.8.04
September
Jæja stúlkur, ég var að hugsa um saumó í fyrstu septembervikunni en það lítur ekki út fyrir að ég geti ákveðið mig strax. Systir mín kemur heim í viku eða tvær núna í byrjun september. Ég vil ekki standa í neinu fyrr en hún er farin aftur út. Svo verð ég náttúrulega að taka tillit til þess að ég vinn 3 kvöld í viku aðra hverja viku svo ég er ekki viss hvenær ég kemst í þetta. En Bryndís má alveg færa sinn klúbb inn í byrjun September ef hún vill, ég er þá bara í lok mánaðar. ;0)
24.8.04
hæ girrls
Á menningarnótt rakst ég aðeins á hana Sirrý en hafði ekki mikinn tíma til að kjafta svo ég myndi ekki tína mömmu í þvögunni. Og hún ekki pabba sínum heldur.
hvað segið þið, á eitthvað spennandi að gerast áður en Ágúst er liðinn??
kv.
Auður

20.8.04
Menningar"nótt"
Hæ hæ stúlkur
Á ekki að skella sér eitthvað í bæjinn á morgun og kýkja á e-ð af öllu því sem er í boði? Hvar á ég mestann séns á að rekast á eina af ykkur?
Sjáumst kannski á morgun á flakkinu.
kv.
Ausa

17.8.04
hey hey
Gaman gaman, ég er strax farin að spá í hvað ég eigi að hafa í mínum saumó.
Nú og svo má ekki gleyma að 1 saumó datt út fyrr í sumar blink blink ;0) . Nú og svo bíð ég allavega enn eftir partýinu hennar Bjarkar, blink blink ;0) .
Sjáumst fljótlega

4.8.04
3.8.04
Saumó
Hæ
Björk ég er búin að heyra/fá SMS frá flestum en ekki þó öllum. Ég ætla að heyra í þeim sem ég á eftir að heyra í í dag og læt ykkur svo vita. Ef fleiri komast á fimmtudeginum þá skiptir það ekki máli fyrir mig en ég læt ykkur vita.
Kv. Inga María.

2.8.04
saumaklúbbur
hæ hæ
Inga hefur þú ekki fengið nein viðbrögð við saumaklúbbnum ?
það er betra fyrir mig á fimmtudaginn en ég kemst líklega samt á föstudaginn :)
vonandi fer þetta að koma í ljós
jæja eru ekki allir búnir að hafa það gott í sumar ég er búin að vera ein heima í 3 vikur og er búin að mála stofuna og ganginn ekkert farið í útilegu og ekkert á djammið:( það er nú alveg komin tími á það en ég fór reyndar til svíþjóðar í 10 daga með fótboltastelpunum að sjálfsögðu það var alveg ágætt en mér fannst reyndar mjög skrítið að þjálfarinn var að drekka í ferðinni mér finnst maður geta bara sleppt því ef maður er með unglinga eða börn á sínum vegum og þjálfarinn er enginn unglingur heldur virðulegur íþróttakennari eða hann heldur það
jæja bæ bæ við hittumst vonandi í vikunni hjá Ingu

28.7.04
Saumó í ágúst
Sælar skvísur.
Það er greinilegt að það er sumarfrí í skriftum hjá okkur :) Ég vona að allir hafi haft það gott í sumar. Ég er búin að vera að djöflast í vinnunni en nú fer að koma að vinnulokum, vinn bara út júlí. Þá kemur aftur að próflestrinum :( fer í 3 próf seinni partinn í ágúst. Við ætlum svo að skella okkur familian til Danmerkur eftir prófin 26. ágúst - 7. september og hafa það notalegt. Eyþór fer á mótorhjólamót fyrstu helgina í september á Jótlandi og þar sem ég var ekki alveg til í að sleppa honum einum út þá ákváðum við að skella okkur öll saman og stelpurnar eru að deyja úr spenningi.
Við höfum verið að skella okkur í Selvoginn nokkrar helgar í sumar og hafa það bara fínt. Ætlum einmitt að skella okkur þangað næstu helgi. Ef þið eruð ekkert að fara og langar að kíkja á okkur þá er það meira en velkomið :) það verður bara gaman að sjá ykkur.
******
Ég var hinsvegar að spá í að fara að plana saumaklúbb þar sem ég á að vera með saumó í ágúst. Var að spá í fimmtudag eða föstudag í næstu viku þ.e. 5. eða 6. ágúst. Endilega látið mig vita hvor dagurinn er betri, skiptir engu fyrir mig, þ.v. einhver annar dagur í vikunni ef það hentar betur, ég er hinsvegar upptekin á laugardagskvöldið 7. ágúst.
Kær kveðja,
Inga María

19.7.04
Sól, sumar og bruni
hæhæ
Já Ragga það virðist vera að flestir séu í fríi, ég kom við á Arnarstapa í gær og brann líka.
Ég var að vinna í gær með skipafarþega í Snæfellsneshring. Þú hefur eflaust tekið eftir því að það komu margar rútur í einu í gær. Þar var ég, og á smá göngutúr á Arnarstapa brann ég, það var líklega endurspeglunin af sjónum. Þetta var 5 tíma ferð með túrista og vorum við í 14 tíma á ferðinni til þess. Fram og til baka frá Rvk og bið í Grundarfirði eftir skipinu. Jæja það er 25% álag á sunnudögum, sem sagt ætti að fá ágætt úr þessum degi.
Bið að heilsa kv.

9.7.04
veikindi
Jæja dúllurnar mínar
Ásta ég vona að drengirnir hafi náð sér, þetta hljómaði ekki vel hjá þeim. Þ.e.a.s hjá Vigni.
Ég er sjálf búin að vera veik í viku, var í hringferð með austurríkismenn og þurfti að halda mér gangandi þrátt fyrir hita.
Ég fékk fúkkalyf hjá lækni í dag, er með bólgur í ennis- og kinnholunum. Aftur, var seinast í Mars. Óþolandi er þetta....
kv.
Auður
p.s. hvenær er saumó?

29.6.04
Hér er fyrirsögnin
Jæja hvernig finnst ykkur þetta vera svona útlítandi?
Svo setur maður link inn í texta fyrirsagnarinnar með því að setja netfangið í þá eyðu.

Sælar elskurnar
Ég eyddi út þessum endurtekna texta Björk, svo að þú þarft ekkert að skammast þín fyrir þetta lengur hi hi.
Ég verð ekki í bænum 1-7 júlí, verð á ferðalagi með austurríkismenn.
Ég er svo þreytt núna, ég hlýt að hafa stundað einhverja svaka vinnu í nótt, því ekki hvíldist ég á svefninum.
Það væri gaman ef við hittumst e-ð bráðlega.
Ég geri kannski nokkrar breytingar hérna á síðunni. T.d. fyrirsögn, þá byrjar maður á því að setja fyrirsögn yfir textann sem maður er að skrifa.

27.6.04
hæhæ
ég fékk í magann þegar þú sagðir amma ég hélt að það væri Elva Brá en það verður gaman fyrir þig að æfa þig á ömmu hlutverkinu en samt gott að það er ekki Elva Brá!!!!!!
jú Danfríður var að klára 10. bekk og er að fara í MK
varstu í partýi í gær Ragga mín að fagna Óla eða kannski Ástþóri?

25.6.04
hæ hæ ég ætlaði ekki að setja þetta svona oft inn sorry !!!! það kom alltaf error og ég hélt að þetta væri ekki að virka
en ég heyrði svolítið fyndið í gær Ella systir hans Dóra var að segja mér hver nýji kærastinn hennar Danfrýðar er og hann heitir Ögmundur Eron Smárason þetta er að verða eins og versta sápuópera allir tengjast eitthvað í Hagkaup
jæja sjáumst Björk

23.6.04
hæ hæ
vááá hvað viðgerðir geta verið dýrar maður ætti kanski að verða bifvélavirki næst til að verða ríkur :)
jæja Ása komst inn í kvennó og ég dreif mig í því að borga skólagjöldin svo að hún myndi ekki missa plássið þar sem hart er barist um hvert pláss mér finnst ótrúlegt að menntamálaráðuneytið skuli ekki hafa gert neitt fyrr vegna þess að þeir vissu í haust hversu stór árgangur var á leiðinni jæja en þetta er bara svona hún flaug alla vega inn sem betur fer og er rosalega ánægð með það
Ragga þú ert rosalega dugleg að vera í útilegum ég er svo löt að ég nenni varla neinu ég fer líka í frí eftir næstu viku og er svo sannalega farin að hlakka til þá tek ég fjórar vikur vinn svo í eina og fer aftur í tvær vikur þetta kallar maður lúxus líf ég vona að ég sofi ekki allt fríið mitt frá mér ég sef nefnilega svo mikið núna (svo agalega þreytt):)
ég vona að við förum að hittast bráðum sakna ykkar

22.6.04
Sælar. Ætla svona rétt að láta vita að ég er á lífi :)
Við vorum í sveitinni um helgina með öllum dýrunum þar. Stelpurnar léku sé að því að láta hanana (8 stk.) elta sig sem er algjört bíó. Hafið þig séð hana að harðahlaupum, það er brjálæðislega fyndið, alla veganna finnst mér það. Tvær merar komu í sveitina um helgina ásamt folaldi og verða á beit þar í sumar. Í júlí/ágúst bætist svo við eitt folaldið í viðbót, stelpunum finnst það ekki leiðinlegt. Stelpurnar verða svo hjá ömmu sinni í sveitinni út þessa viku.
Ég er búin að hafa það ágætt, nóg að gera í vinnunni. Lenti hinsvegar í smá veseni með bílinn í gær, gat ekki lokað #&%$"#$ rúðunni sem er búin að vera ótrúlega leiðinleg undanfarið, þannig ég varð að fara með bílinn á verkstæði til að láta þá hjálpa mér að loka rúðunni, ekki gat ég skilið bílinn eftir galopinn. Sú hjálp kostaði litlar 17.000 kr. og ég var bíllaus í morgun en ég á svo góða mömmu sem skutlaði mér og sótti mig í dag. Það er eins gott að ég geti lokað rúðunni núna. Það er ótrúlegt hvað viðgerðir á bílum eru dýrar. Nóg um það. Hlakka til að sjá ykkur næst.
Kveðja, Inga María