15.1.05

Bústaður

hæ ég fer fermingu á Pálmasunnudag fattaði það bara þegar Ragga minntist á það :)
takk fyrir kveðjurnar ég ætlaði að segja æxli en ekki ægsli ég sá að þetta var eitthvað ekki rétt en svona er ég bara
annars er ég til í allar aðrar helgar
kv Björk

Orlof - dagsetningar

Vona að allt gangi vel hjá ykkur Björk og Bryndís :)

Varðandi sumarbústaðaferðina þá myndi henta mér best af tillögum Bryndísar helgin 11.-13. mars, 18.-20. mars gæti þó alveg gengið en vegna ritgerða og verkefna þá vil myndi ég síður vilja fara í apríl (var ekki búin að pæla í því um daginn). Ég er alveg til í Grímsnesið.

Ég hringdi hinsvegar í VR og það er fullt laust í febrúar og mars en þeir eru ekki byrjaðir að skrá niður pantanir fyrir apríl. Maður hefur tvo daga til að greiða bústaðinn. Getið kíkt á bústaðina hér

Það sem er í boði þar er:
Flúðir (18.-20. feb.,25.-27. feb og 11.-13 mars),
Miðhúsaskógur(sömu helgar + 4.-6. mars),
Vaðnes (4.-6 mars, 11.-13. mars)
Kv. Inga María

14.1.05

Sumarbústaður

ég er alveg til eftir páska ef það henntar vel fyrir ykkur ég get það allavega ekki í febrúar það eru fluttningar í gangi nóg að gera og svo er mamma að fara í aðgerð þegar því líkur hún er því miður með ægsli í ristlinum:(
en annars ráðið þið
kv Björk

Húsmæðraorlof

Ég var að spá í dagsetningar fyrir bústaðarferð, það er ef við náum í bústað! Ég sé hinsvegar fram á að þurfa að koma á laugardeginum, ég er í tveimur dæmatímum á hverjum einasta laugardegi en ég mun pottþétt koma um leið og seinni dæmatímin klárast :) Við skilum af okkur íbúðinni 1. febrúar þannig að helgin fyrir þann dag kemst ég ekki en allar aðrar helgar eru lausar, að svo stöddu. Eftir páska er einnig í lagi mín vegna.
Ég held að ef við ætlum að fá bústað að þá ættum við allar að líta í kringum okkur og kanna málið. Er ekki hægt að taka frá bústað í einhverja daga áður en maður staðfestir? hvernig er það? Ég skal kanna málið hjá VR og athuga hvaða helgar eru lausar. Ég veit að helgin þar kostar 12.000, finnst ykkur það of dýrt? Látum við samt ekki slag standa ef það er eina sem er í boði?
Kv. Inga María

13.1.05

Til hamingju Inga mín!!!

Jæja þetta eru nú ekki neinar smá fréttir hjá þér Inga mín (og auðvitað var ég fjarverandi vegna vekinda). Til lukku með þetta allt saman!!!
Ég er búin að liggja (bókstaflega) í flensu síðan á föstudaginn og hef ekki enn komist í vinnu... og með nagandi samviskubit auðvitað. Það hefði nú verið mun skemmtilegra að komast í saumó og hitta ykkur en að liggja hálf meðvitundarlaus í bólinu skjálfandi eins og hrísla. Ég er þó fegin því að hafa ekki komið og smitað ykkur allar því þetta er sú allra versta flensa sem ég hef fengið á minni flensuríku ævi.

Ójá ég hlakka verulega til að komast í gott og slakandi húsmæðraorlof og hef ekki neinar sérstakar óskir aðrar en að það verði nú örugglega farið!!!

Hilsen héðan frá skaganum

9.1.05

maður má greinilega ekki verða veikur

hæ hæ
Innilega til hamingju Inga, maður má greinilega ekki missa úr saumaklúbb vegna veikinda. Og ég sem var búin að hlakka svo til að komast loks í saumó. Svo loksins þegar það er eitthvað spennó í saumó get ég ekki mætt. Ég var að spá í að koma samt en það hefði ekki verið sniðugt að smita ykkur og vera sjálf ekki upp á mitt besta með hita og beinverki.
Ég get ekki verið með neinar séróskir vegna sumarbústaðarferðarinnar því ég veit ekki hvernig hlutirnir verða hjá mér. Ég er því mjög sveigjanleg og vona að allt muni ganga upp.
kv.
Auður

8.1.05

nýtt netfang!!!

jæja ég fékk mér loksins nýtt netfang ása valdi reyndar nafnið á því.......
það er bjorkbean@gmail.com
það var bara rólegur og góður saumaklúbbur í gær takk fyrir mig (ýmsar góðar fréttir)
jæja ég vona að þið sendið mér nú póst ég er ekki búin að komast í póstinn minn síðan í haust eða eitthvað svoleiðis
kv Björk

Saumó hjá Ingu Maríu

Sælar elsku dúllurnar mínar mikið rosalega var gaman að sjá ykkur sem komust en sakna þó ykkar sem ekki komust. Þið sem ekki komust þá langar mig rosalega að þið kíkið við á bloggsíðunni okkar þ.e. fjölskyldunnar í Engihjalla 19 , íbúð 6A. Ég set hana í linkinn, smellið á fyrirsögnina :) Við hinsvegar vorum alltof uppteknar að tala um hitt og þetta að við gleymdum að skipuleggja næstu saumaklúbba og svo ekki sé á það minnst SUMARBÚSTAÐARFERÐINA - HÚSMÆÐRAORLOFIÐ þannig að við verðum að finna dagsetningu fyrir orlofsferðina sem allra fyrst ef við ætlum að fá einhvern bústað, verum því í sambandi á síðunni eða í síma.
Kær kveðja, Inga María

4.1.05

Saumó á föstudaginn

Ég ætla að hafa saumó á föstudaginn. Endilega látið mig vita hvort þið komist eða ekki. Hlakka til að sjá ykkur. Allir jólaafgangar er velkomnir svo og öl o.þ.h. p.s. ég er samt búin að pakka öllum vínglösunum mínum niður nema kampavínsglösunum þannig við getum bara drukkið úr þannig glösum ef út í það fer :)
Kv. Inga María

3.1.05

Saumó já já !!

Hæ hæ Inga ég vil endilega koma í saumó til þín, nema ég er að vinna í hagstofunni annað kvöld og miðvikudagskvöld. En öll önnur kvöld eru galopin. Kannski matur hjá mömmu á fimtud. ég kæmi bara eftir matinn.
Já það væri kannski hugmynd að við kæmum allar með jólaafganga ef einhverjir eru sem þarf að klára, smákökur eða eitthvað slíkt sem þarf að hverfa af heimilum áður en líkamsræktarátakið byrjar.
Og að sjálfsögðu óska ég ykkur öllum gleðilegs nýs árs.
sjáumst í saumó
Auður

Nýárs-SAUMÓ!!!

Hæ allar saman og gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Ég þakka fyrir öll kortin en því miður kom ég mér ekki í jólakortaskrifgírinn þannig að ég sendi ykkur bara kveðju á netinu.
Ég ætla að bjóða mitt heimili undir janúar saumó. Ég myndi helst vilja hafa hann í þessari viku því skólinn byrjar í næstu viku, föstudagurinn væri fínn fyrir mig, mig langar líka svo rosalega að skála við ykkur:) væri þá ekki fínt þá að hafa frídag daginn eftir svona til öryggis ef allt færi úr böndunum :)
Við erum hinsvegar byrjuð að pakka niður þannig að ég ætla ekki að standa í neinum stórræðum, bara snakk, gos o.þ.h. , kannski ég gefi ykkur heitt í ofni það er svo auðvelt.
Endilega látið mig vita :)

Kær áramótakveðja,
Inga María

31.12.04

NÝTT ÁR

GLEÐILEGT ÁR !!!!
krúttin mín og farið þið nú varlega með flugeldana og drykkjuna :)
sjáumst svo hress á nýju ári 2005
annars ekkert að frétta hjá mér
kv Björk

24.12.04

Gleðileg jól

Gleðileg jól
Með von um að þið eigið góðar stundir með ykkar fjölskyldum

Jólakveðja,
Inga María og fjölskylda

18.12.04

Til hamingju Inga

Mér sýnist klukkan vera að fara slá 16:30 svo ég get ekki annað en óskað Ingu til hamingju með að vera loksins komin í jólafrí. En ætli það sé nokkur afslöppun hjá henni núna, örugglega margt sem hefur legið á hakanum vegna lærdómsins. Njóttu þess að fara í klippingu og að gera eitthvað fyrir sjálfa þig.
Ekkert að frétta af mér, bara heilmikið að gera við að sækja um og að finna sér verkefni að gera.
kv. Auður
p.s. hvenær verður saumó næst?

16.12.04

Smá lífsmark hér :)

Hæ, ég er enn á lífi :) þó svo að mér finnist ég vera orðin eitt af húsgögnunum heima hjá mér ;) sit (allan!!) daginn við skrifborðið og les!!!!
Ég hlakka svo til á laugardaginn kl. 16.30 því þá er ég komin í jólafrí, ligga ligg lá.
Mér er búið að ganga þokkalega í prófunum en þó gekk mér ekki vel í fyrsta prófinu :( - það verður bara að koma í ljós hvernig það hefur gengið en ég nenni ekki að pæla í því núna það er búið og gert, best að reyna að vera jákvæður. Mér finnst samt alveg ferlega skrítið hvað maður verður þreyttur og syfjaður við að lesa fyrir próf það er eins og öll orka sé soguð úr manni og maður sér rúmið sitt í hyllingum. Svo getur maður endalaust verið að svekkjast yfir sjálfum sér hvað maður var ekki nógu duglegur að lesa yfir önnina og þá ætlar maður sér alltaf að gera betur á næstu önn, sjáum hvort það gengur eftir. Jæja hvað um það þetta tekur enda.
Ég pantað mér tíma í klippingu og strípur á mánudaginn, enda er alveg kominn tími á að ég geri eitthvað smá fyrir sjálfan mig, ég hef ekki farið í klippingu í marga mánuði, ekki síðan í sum....... vá maður.
Nú er ekki nema rétt rúmlega mánuður þar til við fáum nýju íbúðina okkar - við erum að deyja úr spenningi, það verður sko haldið geðveikt innflutningspartý, ykkur er öllum boðið, læt vita um dagsetningu síðar. Pæliði í því litla barnið mitt er orðin 10 ára, vá hvað tíminn er fljótur að líða. Bla bla bla ...... nú held ég að mín ætti að fara að sofa, ég skrifa tóma steypu enda er ég orðin frekar syfjuð.
Ragga, gaman að heyra að Elva Brá verði hjá ykkur um jólin, ég er viss um að Ármann og Fanney eru rosalega ánægð með það og ekki síður þið.
Bæ í bili og vona að ég heyri í eða sjái ykkur á þessu ári, ekki nema 16 dagar eftir......
Góða nótt

2.12.04

Hooohooohó

Hæ, hæ
Ég sit hér ein heima og er að reyna að læra fyrir próf, frekar boring. Ég er búin að reka liðið í bíó til að fá smá frið a.m.k. til kl. 8. Mikið er veðrið eitthvað innilega óskemmtilegt, ég er að minnsta kosti fegin að hafa ekki þurft að fara út í dag.
Er eitthvað að frétta af ykkur? Allir komnir í jólastressið? Ég byrja í prófunum á mánudaginn og er til 18. des. þá getur maður farið að hafa gaman af jólastússinu. Endilega skrifið ég er alltaf að kíkja, á náttúrulega að vera að lesa en þið vitið hvernig þetta er þegar maður á að vera að læra ;)
Bið að heilsa ykkur öllum. Ef það verður saumó á þessum tíma (Guðrún) þá á ég ekki vona á að koma því miður. Hafið það sem allra best, hlakka til að hitta ykkur næst.

24.11.04

Jólin jólin jólin koma brátt :)

Smellið á linkinn. Aðeins að koma fólki í jólafílinginn.

FRÍTT spjall á netinu

Sælar
Þar sem þið eruð allar orðnar svo tæknivæddar þá setti ég inn link þar sem hægt er að ná í forrit til að geta spjallað saman frítt á netinu. Eina sem maður þarf að eiga er headset með mic. Ég er með þetta í tölvunni hjá mér og hef prufað þetta. Þetta er mjög sniðugt og kostar mann ekkert aukalega.

Ef þið hlaðið niður forritinu þá getið þið fundið okkur með því að fara inn í Tools - Search for skype users..... svo sláið þið bara inn notendanafnið okkar í Look for ..... Gæti ekki verið auðveldara. Notendanafnið okkar er ingaogeythor
kv. Inga María

21.11.04

STUÐMENN

jæja ég er vökvuð þetta var rosalegt stuð allavega skemmti ég mér mjög vel :)
takk fyrir kvöldið dúllurnar mínar vona að allir hafi skemmt sér vel Bryndís og Rúnar misstu af miklu
sjáumst hress
Björk
ps góðar myndir Auður

Jólahlaðborð

Ég þakka ykkur öllum fyrir skemmtilegt kvöld. Ég sé að ég er ekki sú eina sem er hvorki fyllri né þreittari en svo að hægt sé að skella sér í tölvuna og skrásetja kvöldið.
Myndirnar eru ekki í tímaröð og eru bara úrval sem ég valdi núna í augnarblikinu, til að ná andrúmsloftinu. Við skemmtum okkur vel eins og sjá má á myndunum.
Góða nótt dúllurnar mínar.
kv.
Auður