Hæ, hæ
Ég sit hér ein heima og er að reyna að læra fyrir próf, frekar boring. Ég er búin að reka liðið í bíó til að fá smá frið a.m.k. til kl. 8. Mikið er veðrið eitthvað innilega óskemmtilegt, ég er að minnsta kosti fegin að hafa ekki þurft að fara út í dag.
Er eitthvað að frétta af ykkur? Allir komnir í jólastressið? Ég byrja í prófunum á mánudaginn og er til 18. des. þá getur maður farið að hafa gaman af jólastússinu. Endilega skrifið ég er alltaf að kíkja, á náttúrulega að vera að lesa en þið vitið hvernig þetta er þegar maður á að vera að læra ;)
Bið að heilsa ykkur öllum. Ef það verður saumó á þessum tíma (Guðrún) þá á ég ekki vona á að koma því miður. Hafið það sem allra best, hlakka til að hitta ykkur næst.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli