Hæ, ég er enn á lífi :) þó svo að mér finnist ég vera orðin eitt af húsgögnunum heima hjá mér ;) sit (allan!!) daginn við skrifborðið og les!!!!
Ég hlakka svo til á laugardaginn kl. 16.30 því þá er ég komin í jólafrí, ligga ligg lá.
Mér er búið að ganga þokkalega í prófunum en þó gekk mér ekki vel í fyrsta prófinu :( - það verður bara að koma í ljós hvernig það hefur gengið en ég nenni ekki að pæla í því núna það er búið og gert, best að reyna að vera jákvæður. Mér finnst samt alveg ferlega skrítið hvað maður verður þreyttur og syfjaður við að lesa fyrir próf það er eins og öll orka sé soguð úr manni og maður sér rúmið sitt í hyllingum. Svo getur maður endalaust verið að svekkjast yfir sjálfum sér hvað maður var ekki nógu duglegur að lesa yfir önnina og þá ætlar maður sér alltaf að gera betur á næstu önn, sjáum hvort það gengur eftir. Jæja hvað um það þetta tekur enda.
Ég pantað mér tíma í klippingu og strípur á mánudaginn, enda er alveg kominn tími á að ég geri eitthvað smá fyrir sjálfan mig, ég hef ekki farið í klippingu í marga mánuði, ekki síðan í sum....... vá maður.
Nú er ekki nema rétt rúmlega mánuður þar til við fáum nýju íbúðina okkar - við erum að deyja úr spenningi, það verður sko haldið geðveikt innflutningspartý, ykkur er öllum boðið, læt vita um dagsetningu síðar. Pæliði í því litla barnið mitt er orðin 10 ára, vá hvað tíminn er fljótur að líða. Bla bla bla ...... nú held ég að mín ætti að fara að sofa, ég skrifa tóma steypu enda er ég orðin frekar syfjuð.
Ragga, gaman að heyra að Elva Brá verði hjá ykkur um jólin, ég er viss um að Ármann og Fanney eru rosalega ánægð með það og ekki síður þið.
Bæ í bili og vona að ég heyri í eða sjái ykkur á þessu ári, ekki nema 16 dagar eftir......
Góða nótt
Engin ummæli:
Skrifa ummæli