3.1.05

Nýárs-SAUMÓ!!!

Hæ allar saman og gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Ég þakka fyrir öll kortin en því miður kom ég mér ekki í jólakortaskrifgírinn þannig að ég sendi ykkur bara kveðju á netinu.
Ég ætla að bjóða mitt heimili undir janúar saumó. Ég myndi helst vilja hafa hann í þessari viku því skólinn byrjar í næstu viku, föstudagurinn væri fínn fyrir mig, mig langar líka svo rosalega að skála við ykkur:) væri þá ekki fínt þá að hafa frídag daginn eftir svona til öryggis ef allt færi úr böndunum :)
Við erum hinsvegar byrjuð að pakka niður þannig að ég ætla ekki að standa í neinum stórræðum, bara snakk, gos o.þ.h. , kannski ég gefi ykkur heitt í ofni það er svo auðvelt.
Endilega látið mig vita :)

Kær áramótakveðja,
Inga María

Engin ummæli: