23.6.04

hæ hæ
vááá hvað viðgerðir geta verið dýrar maður ætti kanski að verða bifvélavirki næst til að verða ríkur :)
jæja Ása komst inn í kvennó og ég dreif mig í því að borga skólagjöldin svo að hún myndi ekki missa plássið þar sem hart er barist um hvert pláss mér finnst ótrúlegt að menntamálaráðuneytið skuli ekki hafa gert neitt fyrr vegna þess að þeir vissu í haust hversu stór árgangur var á leiðinni jæja en þetta er bara svona hún flaug alla vega inn sem betur fer og er rosalega ánægð með það
Ragga þú ert rosalega dugleg að vera í útilegum ég er svo löt að ég nenni varla neinu ég fer líka í frí eftir næstu viku og er svo sannalega farin að hlakka til þá tek ég fjórar vikur vinn svo í eina og fer aftur í tvær vikur þetta kallar maður lúxus líf ég vona að ég sofi ekki allt fríið mitt frá mér ég sef nefnilega svo mikið núna (svo agalega þreytt):)
ég vona að við förum að hittast bráðum sakna ykkar
kv Björk

22.6.04

Sælar. Ætla svona rétt að láta vita að ég er á lífi :)
Við vorum í sveitinni um helgina með öllum dýrunum þar. Stelpurnar léku sé að því að láta hanana (8 stk.) elta sig sem er algjört bíó. Hafið þig séð hana að harðahlaupum, það er brjálæðislega fyndið, alla veganna finnst mér það. Tvær merar komu í sveitina um helgina ásamt folaldi og verða á beit þar í sumar. Í júlí/ágúst bætist svo við eitt folaldið í viðbót, stelpunum finnst það ekki leiðinlegt. Stelpurnar verða svo hjá ömmu sinni í sveitinni út þessa viku.
Ég er búin að hafa það ágætt, nóg að gera í vinnunni. Lenti hinsvegar í smá veseni með bílinn í gær, gat ekki lokað #&%$"#$ rúðunni sem er búin að vera ótrúlega leiðinleg undanfarið, þannig ég varð að fara með bílinn á verkstæði til að láta þá hjálpa mér að loka rúðunni, ekki gat ég skilið bílinn eftir galopinn. Sú hjálp kostaði litlar 17.000 kr. og ég var bíllaus í morgun en ég á svo góða mömmu sem skutlaði mér og sótti mig í dag. Það er eins gott að ég geti lokað rúðunni núna. Það er ótrúlegt hvað viðgerðir á bílum eru dýrar. Nóg um það. Hlakka til að sjá ykkur næst.
Kveðja, Inga María

18.6.04

Jæja dúllurnar mínar viljið að fleiri skrifist á við ykkur.
Elsku Björk mín ég ætlaði sko endilega að senda þér hamingjuóskir á útskriftardaginn en klúðraði því náttúrulega. Fyrirgefðu mér það.
Já þú varst nú eitthvað búin að tala um þetta með barnið og lyfin um í saumó hjá þér.
Hæ Inga takk fyrir að hugsa til þess að við gætum kýkt á tónleikana hans Eyþórs á miðvikudaginn en ég var að fara að vinna daginn eftir svo ég gat ekki farið neitt út það kvöldið, þurfti nefnilega að vakna kl. 6. Ég var að túristast með farþega af skemmtiferðaskipinu Albatros sem skemmdist og liggur við bryggju í Straumsvík. Í gær varð ekkert úr ferðinni sem ég átti að fara í, og í morgun ekki heldur en ég fæ samt borgað eins og ég hefði farið svo það er ekki slæmt.Í morgun var okkur sem ekki komust af stað í ferðirnar boðið í morgunmat um borð. Það var engan veginn eins flott og ég hefði haldið, ekki einu sinni gott. En það var forvitnilegt að komast inn í eitt skipið einu sinni.
Ég talaði við systur mína í dag og hún hljómaði ágætlega hún er bara þreytt það er allt sem er að hrjá hana. Ég var farin að halda að hún væri verr haldin, ég held að mamma geri meira úr hlutunum og auki óttann hjá mér. Ég sleppi milliliðnum eftirleiðis. Hlusta á systur mína en ekki mömmu og hennar túlkun.

17.6.04

hæ hæ
hvað segið þið gott?
ég á alltaf eftir að sækja kremið til þín Ásta ertu heima eftir helgina? Ása er nefnilega að fara út með landsliðinu 27. júní og ég ætlaði að senda hana með þetta og langar að prófa það líka
það er allt gott að frétta hér ég fékk íslenska orðabók frá mömmu og pabba í útskriftargjöf og þríkross frá systkinum mínum síðan fékk ég 10000 frá Reyni og Jenný í bakaríinu bleika sæta slæðu frá frænku minni og ilmvatn frá tveimur sem ég vinn með ég græddi bara heilmikið en mér finnst, ilmvatnið dálítið þungt og ætla að skipta því vitið þið um eitthvað með góðri lykt? ég fæ nefnilega hausverk af þungum ilmum og ýmsum ilmum ég er svo rugluð:)
Annars er Bjössi bróðir minn og Beta mágkona mjög reið út í mig núna vegna þess að ég spurði hvort sonur þeirra væri en þá á lyfjum og afhverju hann væri á lyfjum þau eru nefnilega búin að vera úti í 3 vikur og strákurinn hefur hrunið niður hann er orðin jafn grannur og Gauji hennar Öllu en hann er með allt öðruvísi vaxtarlag en hann Gauji
hann missti matarlystina á lyfjunum og ég vissi ekki að það væri leyndarmál að barnið væri á lyfjum
Beta sagði reyndar að þau réðu ekki hvort hann væri á lyfjunum og ég sagði henni að það væri ekki rétt auðvita ráða foreldrar því auk þess sagði hún að þau gætu ekki verið að hjálpa honum að læra vegna þess að þau ættu fleirri börn ég spurði hvort honum gengi betur að læra á lyfum en Bjössi sagði nei ekki þegar þú orðar það svona
en ég mátti ekki ræða þetta þess vegna eru þau svona reið
þetta er alveg ótrúlegt Strákurinn fékk 9 í samrænduprófunum í 4 bekk´og er bara mjög klár en vantar verkefni við hæfi í skólanum
en þau ætla ekki að tala við mig aftur ég vill ekki að þetta fari lengra ég er bara pirruð út í þau þau gera líka svo upp á milli barnanna sinna
sorry röflið í mér :)
jæja við heyrumst kanski verður einhver saumó í júní
kv Björk

10.6.04

Einn daginn fékk maðurinn minn skyndilega þá köllun að fara að sinna

heimilisstörfunum og í einhverju bjartsýniskasti ákvað hann að þvo

stuttermabolinn sinn. Hann var varla kominn inn í þvottahús þegar hann

kallaði á mig "Á hvaða stillingu set ég þvottavélina elskan?"

"Það fer eftir því hvað stendur á bolnum" kallaði ég til baka.

"Húsasmiðjan" Gargaði hann...

Og svo segja þeir að ljóskur séu heimskar.....

9.6.04

hæ hæ
Vááááþetta er bara snild hjá þessum dreng Ásta :)
takk fyrir hamingju óskirnar við erum bara mjög ánægðar með okkur það er gott að þetta er búið hjá mér en Ása stefnir á Kvennó og kemst vonandi þangað
Ásta hvenær fær maður kremið veistu það?
Ragga mín bara að reyna fleiri staði í útilegur
pabbi er bara eins ég vona að ég geti fengið hann allavega aðeins heim á laugard eða sunnud
bæjó Björk:)
Sælar stúlkur
Til hamingju með árangurinn Björk og til hamingju með Ásu líka. Þið eruð greinilega báðar sömu námshestarnir. Það er nú soldið skemmtilegt að þið skylduð báðar vera að klára skóla sama vorið.
Njótið helgarinnar í faðmi fjölskyldunnar og það er alltaf hægt að nota sama tilefnið til að halda Partý seinna. Það er alltaf gott að eiga tilefni til vara. Hi hi.

Ragga mín kannski ættuð þið að fara að leggjast í ferðir upp í óbygðir þar sem ekki eru svona vitleysingar... hmmm nei sorry þeir eru víst alstaðar. En ekki vera of fljótfær að selja útilegudótið.....

Skemmtið ykkur vel dúllurnar mínar.
kv.
Auður

8.6.04

Innilega til hamingju með árangurinn Björk, einnig til hamingju með hana dóttur þína. Þetta er glæsilegt hjá ykkur mægðum :)
Hlakka til að samgleðjast þér síðar í sumar. Ég hefði heldur ekki getað komist um helgina. Eyþór er að fara að spila á Tálknafirði bæði föstudags- og laugardagskvöld. Stelpurnar fara til ömmu sinnar í sveitina og ég ætla að skreppa með honum.
Kv. Inga

7.6.04

hæ hæ
ég ætla að fresta partýinu þangað til seinna í sumar vegna þess að pabbi er á spítala og hann er búin að bíða svo lengi eftir að ég útskrifist að ég ætla bara að vera með smá boð fyrir hann og systkynin mín ok
en ég fékk 8 fyrir ritgerðina og 9 fyrir hitt fagið sem ég var í og er bara nokkuð sátt vegna þess að ég var orðin hud þreytt á þessari ritgerð á endanum.
jæja við heyrumst
kv Björk

3.6.04

Til hamingju með Ásu þín Björk mín... rosa flottur árangur hjá henni.
Ég verð því miður á ættarmóti þann 12. og kemmst því ekki til þín.

Bæjó, Sirrý

2.6.04

hæ hæ Stelpur
eru þið lausar 12. júní vonandi eru þið ekki í útilegum þá ég er nefnilega að útskrifast og langar að fá ykkur til að gleðjast með mér þið skiljið:)
Ásta hvenær er þessi kynning eða er ég búin að missa af henni ég er svoooo gleymin
Ása var að fá úr samrændu og stóð sig eins og hetja hún fékk
8,5-7-9-9-7-8 er þetta ekki flott ein svolítið montinn
jæja bið að heilsa kv Björk

31.5.04

Hæ stelpur mínar!!

Sorrý að ég kom ekki á föstudagskvöldið elsku Björk mín. Ég komst bara ekki þar sem ég var bíllaus (Dóri var að dæma í Borgarnesi og bíllinn minn er bilaður) og gat ekki reddað mér fari. Auðvitað gleymdi ég svo að hringja og afboða mig.... skildi ekki fyrr en í gær hvers vegna ég var með hiksta allt kvöldið... he..he.

Þúsund afsakanir og þúsund kossar,
Sirrý

30.5.04

hæ hæ
takk fyrir síðast :)
ég var á Þingvöllum það er á Valhöll á árshátíð hjá Reynibakara það var geðveikt stuð við dönsuðum og drukkum til klukkan fimm í morgun og gistum síðan í frábærum herbergjum bara geðveikt gaman og allt á Reynis kostnað svona á þetta að vera
vildi bara deila þessu með ykkur

Ragga og Bryndís var ekki fínt í útilegunni þið fenguð allavega frábært veður?
sjáumst Björk

27.5.04

Hæ hæ
Úps ég gleymdi því að ég er boðin í grillveislu hjá rauða krossinum á föstudagskvöldið. Ég kem nú samt í saumó en í seinni kantinum, ef það er í lagi, Björk mín?
bið að heilsa ykkur dúllurnar mínar
Auður

26.5.04

Ég reikna með að mæta í saumó :)
Hlakka til að sjá ykkur
Kv. Inga

23.5.04

hæ ´hæ

já þú mátt hafa öl alveg velkomið
það verður gaman að sjá ykkur
kv Björk

22.5.04

Hæ Hæ
Saumó hjá mér á föstudaginn 28. maí koma ekki allar allavega flestir það komust svo fáir á sunnudaginn þannig bara að mæta á föstudaginn
annars er ég með Dana hér hún kom í dag og fer á föstudagsmorgun ég er ekki mjög góð í dönsku og er frekar kjánaleg en Ása reddar þessu hún er nú hjá henni
jæja það verður bara gaman að sjá ykkur á föstudaginn
bæ´bæ Björk

18.5.04

Sælar
Ég held að það sé kominn tími á að ég láti heyra eitthvað frá mér :) Prófin eru BÚIN, jess. Er reyndar ekki viss hvort ég næ öllu, mér gekk ekkert ofvel,held ég en þetta er búið í bili og ég er svo ótrúlega fegin. Ég skellti mér í bæinn á laugardagskvöldið eftir Eurovision og lenti náttúrulega í leigubílaveseni eins og eflaust allir sem fóru niður í bæ. Það voru ótrúlega margir niðri í bæ. Það var samt rosalega gaman að fara aðeins út á lífið, mér finnst eins og það séu ár og aldir síðan ég fór niður í bæ.
Á morgun er hinn langþráði dagur að renna upp..... er að fara til Köben :) gaman gaman. Ég skal drekka nokkra öllara fyrir ykkur og njóta sólarinnar, fara í tívolíð og eitthvað fleira skemmtilegt. Ég kem svo heim á sunnudagskvöldið.
Vona að systir þín nái sér Auður mín :)
Hlakka til að sjá ykkur fljótlega
Kv. Inga María

15.5.04

jæja dúllurnar mínar , ég held að þetta verði í lagi hjá systur minni. Ég bara trúi ekki öðru. Hún er í rannsóknum núna við fáum að vita hvað er að gerast í næstu viku.
Eg er a leiðinni heim a morgun.

7.5.04

Jæja Ragga mín vilt þú ekki segja okkur hvar við finnum síðuna hennar Hófí svo við getum dæmt um hversu slæmt vinarbrotið er.

Ég fékk slæmar fréttir í gær elskurnar og fer til svíþjóðar á sunnudag til að vera hjá systir minni sem er orðin alvarlega veik á sjúkrahúsi. Ég ver líklega í viku þar.