27.2.04

hæ hæ eru ekki allir í stuði fyrir afmæli aldarinnar :)
ég ætla allavega að sletta úr klaufunum eftir erfiðan hálfan mánuð í vinnuni sjámust
Björk

26.2.04

Úllalla Ragga.... s.s. ekki langt í að við förum að kalla þig Séra Ragnheiður Björnsdóttir.... það passar jú svo vel.
Við verðum bara að taka góða rokkdiska með í bústaðinn og yfirgnæfa predikunina.... ef hún fer að verða of mikil c",)

Kv, Sirrý
ohhh.... jæja Auður mín það er nú hægt að næla sér í aðra drullupest framað bústaðarferð.... ekki vera of viss um að þú sért sloppin (þó ég voni nú auðvitað að svo sé - okkar allra vegna... hehe..).
hmm ég´veit ekki hvort ég á að segja frá þessu, #(roðn)#. Ég er búin að vera soldið slæm í maganum í dag og vindgangurinn eins ílla lyktandi og þarna um árið, úps nú man ég hvað þetta var hræðilegt.
Allavega verður þetta þá búið fyrir ferðina og hana nú. Í þetta sinn skal einhver önnur láta hlæja að sér fyrir líkamsstarfsemi sína.

24.2.04

Ohh... hlakka líka þvílít til en..... var að reikna (þvílíkt klár í því sko) og haldiði að ég verði ekki á sullandi bullandi.... þið vitið :S
Kannski sé ég bara aftur um að redda veitingum í pottinn.

Kv, Sirrý sem ætlar að taka verkjatöflur og bleyjur með í bústaðinn
jamm 10 dagar þar til við förum í bústaðinn, nammi mig hlakkar til.

21.2.04

Ég tek með mér einhver spil. Hvaða spil ætti ég að taka með?
Við eigum:
partýspilið,
viltu vinna milljón (þæði barna og unglinga og venjulegt),
Sequence (held að Inga hafi ætlað að taka það með),
Hættuspilið,
Pictionary,
Latabæjarspilið (ekki viss um að ég nenni einhverjum leikfimisæfingum..... en hver veit...)

man ekki eftir fleirum eins og er.....

síðan kem ég með auðvitað með Doritos, salsajukk og salsasósur fyrir föstudagskvöldið. En er eitthvað fleira sem vantar?

Spurning auðvitað með tónlistina..... eigum við ekki bara að mæta með nokkra góða diska hver? Er tæki í bústanum eða?

Tilhlökkunarkveðjur, Sirrý

18.2.04

ok þá er að bretta upp ermarnar og spá í hvað við þurfum að taka með okkur og hver er með hvað.
Það sem ég held ég taki með ef þið hafið ekki aðrar hugmyndir

Auka Klósettpappír ( öryggið á oddinn )
Skriffæri & pappír (skæri?)
Venjuleg spil
Yatsy teningar
kerti + eldfæri
servéttur
tarot ?

Hvað ætli ég taki með mér fyrir föstudagskvöldið? Eigum við ekki að halda því opnu aðeins lengur, hvaða réttir eru hugsaðir og hvað vantar upp á?
Ok Bryndís með salatið sitt, Sirry með nacho dótið sitt, mig minnir að Guðrún ætlaði að sjá um nammið. Ég get tekið það að mér ef hún kemst ekki. Annars megið þið ráða hvað ég á að taka með.
Ausa

16.2.04

Sælar skvísur
Ég sé að ég er ekki nógu dugleg að kíkja á síðuna okkar, var fyrst að sjá saumaklúbbsboðið núna. Ég verð eiginlega að sjá til hvort ég kem eða ekki, ég er frekar tuskuleg núna, það er að hellast yfir mig kvef og hálsbólga og mér líður ekkert rosalega vel núna. Ég reyni að kíkja ef ég verð hressari, vil ekki vera að smita litla krílið. Ef ég kem ekki þá bið ég bara rosalega vel að heilsa ykkur öllum.

Ég reikna með að komast með í sumó :)
Ég held hinsvegar að við ættum að sleppa bílaleigubílnum, það má svo lítið út af bera til að kostnaðurinn verði of mikill, þ.e. ef einhver kemst ekki með af óviðráðanlegum orsökum þá sitji hinir uppi með kostnaðinn, það væri ósanngjarnt finnst mér.
Kv. Inga

13.2.04

hæ hæ ég býst við að komast á þriðjudaginn (nema ég sé að fara að klára verkefni með hinum stelpunum)
Enn elsku krúttin mín ég sé ekki fram á að fara með ykkur í bústaðinn það er en slatti eftir af ritgerðinni og svo á ég að skila öðru verkefni 8. mars so sorry en ég er viss um að ég hafi ekkert að gera í næstu ferð þegar þessu (helv) námi er lokið (ein orðin svoldið þreytt það er nefnilega alveg nóg að vera í þrjú ár í skóla allavega fyrir mig):(:(
kveðja Björk
ps. góða helgi
Ragga og Guðrún bið að heilsa öllum á players:):)
átti auðvitað að vera söngfuglinn *roðn* (stundum hálf fötluð á lyklaborðinu með Aron Helga í annari og pikkandi með hinni) svona er maður nú bissý

Kv, Sirrý
Til hamingju með sögnfuglinn Ásta ;)

Ég kemst líka (nema eitthvað komi uppá) og hlakka mikið til að sjá ykkur allar.

Kv, Sirrý
Ég kemst á þriðjudag, hlakka til að sjá ykkur.
kv.
Auður

10.2.04

Æji já Björk mín til hamingju með afmælið þitt (smá sein *roðn*).
Vonandi gengur allt vel í skólanum og með ritgerðina svo þú komir nú með í bústaðinn.

Kv, Sirrý
takk fyrir afmæliskveðjurnar stelpur og sms Ragga ég er á fullu að skrifa og það gengur bara ágætlega ég ákvað að fara ekki í skólann heldur halda bara áfram vegna þess að maður fer úr stuði ef maður er í fjóra tíma í skólanum ég fæ bara glósur hjá stelpunum:)
kveðja Björk

9.2.04

Innilega til hamingju með afmælið Björk.
Vona að þú hafir átt góðan dag :)
Kveðja, Inga María
Elsku Björk
Til hamingju með afmælið í dag. Það raðast svo margir afmælisdagar á febrúar að maður hefur ekki undan.
Taktu þér smá pásu frá ritgerðinni til að anda djúpt og njóta dagsins.
kv.
Auður
Darling Ragga mín til hamingju með afmælið, smá seint en betra seint en aldrei.
Ég er tölvulaus þessa dagana þannig að ég kemst ekki á netið nema í vinnuni. Bíð eftir að vandræðagripurinn komi úr viðgerð.
knús í krús
Auður

7.2.04

hæ hæ til hamingju með afmælið Ragga mín :) :)
ég verð í sumarfríi næstu viku og ætla að vera að vinna í ritgerðinni minni ef það gengur vel þá ætla ég með ykkur en ég verð eiginlega að sjá það bara á föstudaginn annars lýst mér vel á að taka bílaleigubíl en endanlegt svar kemur á föstudag ef það er ekki of seint
kveðja Björk (pínu stressuð yfir þessari ritgerð)
Já ég er alveg til í að vera með í svona bíl. Kem líka alveg örugglega nema eitthvað rosalegt komi uppá.

Kv, Sirrý
Til hamingju með afmælið Ragga mín.
Kveðja, Inga María
Sælar
Varðandi bílaleigubíl þá er ég alveg til í þetta fyrir þetta verð en ég á ofboðslega erfitt með að segja 100% hvort ég kemst eða ekki. Ég veit að það eru miðannapróf framundan en það er ekki komin nema ein dagsetning af a.m.k. fjórum. Þannig ef það verður próf akkúrat þessa helgi eða strax eftir helgina þá kemst ég ekki, því miður. Það hljóta að fara koma dagsetningar bráðum, gæti samt alveg dregist eitthvað út þennan mánuð. Meðan svo er þá get ég ekki verið 100% viss. Hvenær þarf að staðfesta pöntun fyrir bílinn?
Kv. Inga María

6.2.04

Ég kem alveg örugglega, ég læt ekkert stöðva mig.
kv
Ausi paus

5.2.04

Mér líður vel í dag er bjartsýn og full af orku, þó svo að tölvuræksnið mitt sem ég keypti í Nóvember hafi dáið.
Ég er að byrja sjálfboðastarf hjá Rauða krossinum, það er nokkuð sem ég hef hugsað lengi um en einhvern vegin hefur alltaf vantað drifkraftinn í að framkvæma það. Nú er skrefið tekið og ég er svo ánægð með það. Margir í kringum mig hafa haft það á orði að þetta væri eitthvað sem þau hefðu íhugað að gera.
Allavega þá fór ég á 1 námskeiðið af 3 í gærkvöldi, svo mun ég fara á 2 til viðbótar áður en ég get farið að svara í hjálparsímann. Þetta var grunnnámskeið rauða krossins, um starfsemi samtakana og uppbyggingu. Næst er svo sálræn skyndihjálp og að lokum viðtalstækni.
Ég er mjög svo spennt að fara að gera eitthvað nýtt og að kynnast nýju fólki, þó að verkefnið sjálft sé eflaust mjög svo krefjandi og erfitt, þá held ég líka að það sé mjög gefandi.
Svo var stjörnuspáin mín svo góð í dag að ég get bara ekki annað en verið bjartsýn.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Endalausir möguleikar einkenna stjörnu þína hér. Hér bíða tækifæri eftir því að vera uppgötvuð og framkvæmd en þú átt það stundum til að forðast þau og trúna á getu þína til afreka. Þegar þú hefur sæst við sjálfið eflist orka þín og ekki síður framkvæmdasemi þín. Horfðu til stjarnanna og sannfærðu sjálfið að heillastjarna þín skín skærust þeirra allra. Óskaðu þér og sjá, birtan eltir þig uppi.

4.2.04

Mér hentar líka betur að hittast á virku kvöldi en helgarnar eru nú ekki allar fullbókaðar svo það gæti alveg reddast.

Ef við komum okkur inn á MSN síðuna, sem ég sagði ykkur frá í síðasta saumó, þá er hún læst fyrir utanaðkomandi og við getum slúðrað að vild. Bryndís ert þú komin inn og búin að skoða þetta eitthvað? Ef þú vilt breyta einhverju þá er það velkomið og endilega prufaðu þig áfram og komdu stelpunum inn. Við getum síðan bara séð til hvort umhverfið við viljum nota frekar.

Kv, Sirrý

2.2.04

Hæ hæ
Til að svara spurningu þinni Ásta, þá er síðan ekki lokuð. Allir sem þekkja eða rata óvart inn á www.valkyrjur.blogspot.com geta séð það sem er birt á síðunni.
Hins vegar er síðan ekki svokölluð public síða. Public síður eru þá á lista hjá blogger, og geta komist á lista yfir áhugaverðar síður. Þessi síða er sem sagt hvergi á lista, en er ekki læst. Það er ólíklegt að margir rati inn á hana en maður getur ekki útilokað að það geri það einhver.
kv.
Auður

31.1.04

Æji greyjið mitt, léttu nú á fangavistinni og skrepptu í kvöldkaffi einhvert.
Ég fór og fékk mér breiðbandsáskrift, ligg þá á fjarstýringunni eins og ekkert sé. 49 stöðvar er smá breyting frá því sem var.
Ég var líka svo dugleg að bora og setja upp hillu í forstofunni í vikunni.
kv.
Auður

29.1.04

Ég er að kynna mér kostnað við bílaleigur, því miður eru stóru bílarnir aldrei á tilboði. Ég tékkaði á Avis á netinu, þar kostaði 7 manna bíll yfir helgi 28200, án Kaskó, 30700 með.
Aðrar voru ekki með nothæfar síður, sem sagt best að hringja

28.1.04

Nú lánaði Bryndís bróðir sínum gáfurnar,hi hi.

25.1.04

Takk fyrir síðast stelpur!!!

Til hamingju með brósa þinn Bryndís mín... hann er greinilega með gáfurnar hennar systur sinnar.
Það var smá misskilningur hjá mér með hvað lambasteik þetta var sem ég var svona hrifin af en þetta er víst VSOP frá Hagkaup en ekki koníakssteik frá SS. Já rétt skal vera rétt ekki satt?

Kv, Sirrý

24.1.04

Til haminju með lille bror Bryndís.
Og Guðrún til hamingju með að vera komin inn.
kv.
Auður
hæ hér er ég.KV Guðrún

23.1.04

Hæ hæ og takk fyrir síðast alltaf jafn gott að borða hjá Sirrý ummmm
til hamingju með Baldvin bróður þinn Bryndís þeir stóðu sig ótrúlega vel fáum við þá að sjá hann í sjónvarpinu??
kveðja Björk
Well my dears
Einhverjar ykkar gátu ekki farið inn á eldri pósta.
Besta leiðin til þess er að fara inn á síðuna sjálfa, þ.e. www.valkyrjur.blogspot.com og sjá þar efst í hægra horninu eru tölur sem minna á dagsetningar.það eru eldri póstarnir, líka um hrærivélina. Þarna er allt geymt sem skrifað er inn á síðuna skypt niður eftir tímabilum. Ef það er bara klikkað á eitt tímabilið kemur það upp og það er hægt að lesa það.
kv.
Auður

22.1.04

Hlakka til að sjá ykkur á morgun ;)

Kv, Sirrý sem er ekkert að drepa sig í undirbúningi *hóst*

21.1.04

ég skal koma með þér Auður ef þú hringir bara á undan þér ok?
kv Björk
Okey þar með er það ákveðið, ég skal vera á bíl. Hver kemur með mér og hvenær á ég að sækja ykkur.
Auður

20.1.04

Glæsó stelpur mínar þetta verður þá fimmtudaginn. Vona að allar sjái þetta :)

Kv, Sirrý
hæ hæ ég væri mjög fegin ef ég fæ far með einhverjum
kv Björk
Sirrý. Ég kemst á fimmtudaginn :)
Ég er alveg til í að fá að fljóta með einhverjum í bíl en ég get líka verið á bil ef þess þarf.
Kv. Inga
Mér sýnist þetta vera að hallast að fimmtudeginum, Ásta ég skal senda þér mailin á maili. Þarf ekki endilega að vera á síðunni.
kv.
Auður

19.1.04

Ja.... miðvikudag eða fimmtudag :S það er spurning??? Ég var svona að vonast til að Guðrún kæmist á fimmtudaginn en komst því miður ekki til að hringja í hana í kvöld eins og ég ætlaði (var í bíó). Hvernig er það Inga, verður æfing hjá Eyþóri? Það mundi henta mér betur að hafa þetta á fimmtudagskvöldið en reddast alveg á miðvikud. Björk kemst bara alls ekki á miðvikud. og helst vill ég að allar komist auðvitað.

Kv, Sirrý
Jæja stúlkur eigum við ekki að reyna að nýta bílana upp á Skaga?
Ég verð á múttubíl næstu 6 vikurnar, svo að ég get verið bílstjóri.
Sú gamla skellir sér til Kanarí á morgun og verður þar í allavega 6 vikur. Gott hjá henni.
kv.
Auður
Bryndís!!!

Jæja hvernig gekk nóttin? Var sú stutta ánægð í sínu herbergi?

Kv, Sirrý

18.1.04

Já ég setti þetta upp fyrir Guðrúnu en hún var ekki inni í herberginu að fylgjast með, ég hélt líka að það væri betra ef hún færi í þetta edrú. Svo ég skrifaði nákvæma lýsingu um það hvernig hún ætti að fara að þessu. Hún skrifaði einu sinni HALLÓ, svo henni tókst að komast inn einu sinni svo að það er kannski bara smá feimni við tölvuna hún þarf kannski einhvern til að halda í hendina á sér á meðan hún prufar sig áfram.
Sirrý, það er ekki alveg víst með fimmtudaginn hjá mér - Eyþór er á hljómsveitaræfingum þá en hann veit ekki alveg hvort það verður næsta fimmtudag. Ég læt þig vita en haltu endilega saumó á fimmtudaginn, mér sýnist að flestar komist þá :)
Kv. Inga María

17.1.04

Inga þú segist frekar komast á miðvikudaginn en kemstu á fimmtudaginn ef þetta verður þá?
Björk getur alls ekki komið á miðvikudaginn og fimmtudagurinn væri líka betri fyrir mig. Ég fer nebblega í bæinn á þriðjudeginum og hef þá kannski ekki eins mikinn tíma í að gera eitthvað gúmmulaði fyrir miðvikudaginn (veit þið viljið fá eitthvað gott - ekki satt?)

Vitiði með Guðrúnu? Hef ekkert hringt í hana, kemst hún annars ekki inn á Bloggið? Já og Ásta? Veit að það er erfitt að vera lengi frá litlu kríli en ef þú treystir þér þá endilega komdu!!!

Kv, Sirrý
hæ hæ stelpur ég kemst ekki á miðvikudeginum það er námskeið í leikskólanum mínum en kemst á fimmtudeginum. fæ ég kannski far með einhverjum ef þetta verður á fimmtudeginum ?
Auður mín vonandi fer þér að batna
kveðja Björk

16.1.04

Jú ég er að skána aðeins.
Ég fór í vinnuna í gær en þurfti að fara snemma heim og var heima í allann dag.
Ég er orðin ansi leið á þessu hangsi. En alltaf þegar ég reyni að gera eitthvað kemst ég að því að mér er ekki batnað.
Það versta er að videoið er bilað, og tölvuræksnið er pínu bilað líka því það er ekkert hljóð,þ.a.l. enginn DVD. booring. Verð að reyna að lesa því ég er örugglega búin með svefnskammtinn.
Ég er vonandi komin í lag um helgina.
Ég kemst báða dagana, svo þið getið ákveðið hvenær saumóinn er.
kv.
Auður

15.1.04

Ég kemst frekar á miðvikudeginum :)
Kv. Inga
Væri sko alveg til í að hitta ykkur með börnin, það er allt of sjaldan sem þau hittast. Ég held að allar helgar henti mér.... sko ekkert merkilegra að gerast þessa dagana.
Annars var ég að hugsa um að halda saumó í næstu viku. Það henta mér eiginlega ekki mánudagur né þriðjudagur en hvernig er með miðvikud. og fimmtud. hjá ykkur? Endilega að hafa atkvæðagreiðslu hér.

Kv, Sirrý

14.1.04

Sælar.
Ég er mjög hrifin af hugmyndinni hennar Guðrúnar. Ég er til hvenær sem er nema næstu helgi þá er ég og Eyþór á förum í frí í sumarbústað :) heitur pottur og góður matur, nammi namm. Ég hlakka einnig mikið til okkar árlega húsmæðraorlofs - það er svo meiriháttar, borða, drekka, sofa, spila, lesa, oooohhh þetta er alveg æðisleg skemmtun og afslöppun.
Til hamingju Björk með hana Ásu, þú hlýtur að vera rosalega stolt af henni.
Elsku Auður mín ég vona að þér fari nú bráðum að batna, ekkert er eins leiðinlegt og að vera veikur.
Nú er skólinn kominn nánast á fullt hjá mér, reyndar eftir að fá að vita hvernær dæmatímarnir verða, ég vona að þeir verði ekki á laugardögum eins og síðustu önn en það er örugglega mikil bjartsýni hjá mér.
Inga María
Æj æj eymingja ég, er heima veik annan daginn í röð.
Mér finnst þetta ekki skemmtilegt.
kv.
Auður

13.1.04

hæ hæ jú þessari skólagöngu fer að ljúka hjá mér ég tel niður það eru 4 mánuðir eftir og næg verkefni fyrsti skóladagurinn var í dag og þetta legst ágætlega í mig vonandi lifi ég það af og get svo farið að lifa eins og venjulegt fólk, hvernig sem það er nú!!
en það er allt gott að frétta hérna er að senda út rannsóknina mína og halda áfram að lesa til að skrifa ritgerðina
kveðja Björk

12.1.04

Til hamingju með duglegu stelpuna þína Björk!!!
Hvernig gengur annars í skólanum, er þetta ekki að verða búið hjá þér? Þá geturðu setið og spilað kapal að vild öll kvöld :)

Kv, Sirrý

11.1.04

hæ hæ við Ása vorum á íþróttahátíð kópavogs þar sem valin er íþróttamaður Kópavogs og veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur Ása fékk bikar fyrir að vera einn efnilegasti markmaður landsins annars var Jón Arnar valin íþróttamaður Kópavogs og Inga Rós fimleikastelpa íþróttakona Kópavogs þetta var bara mjög gaman ( en ég skil nú reyndar ekki alveg afhverju alltaf er verið að heiðra hann Jón Arnar mér finnst hann alltaf vera að klúðra einhverju)
kveðja Björk
ps. ég skil ekkert í mér þegar ég ætla að fara að læra þá festist ég alltaf í einhverjum hundleiðinlegum kapal hjálpppp
:)
Já netfangið á síðunni hans Arons Helga er http://www.barnaland.is/barn/13684 Þar getið þið skoðað myndir og fylgst með litla stubb. Ég er að vísu ekkert allt of dugleg að skrifa í vefdagbókina en vonandi fer það nú að lagast :S

Kv, Sirrý

P.s. ef einhverjar aðrar eru með síður fyrir börnin sín þá væri ég alveg til í slóðina.
Talandi um myndir, Sirry ert þú ekki búin að gera einhverjar heimasíður og með fullt af myndum af hverju deilir þú ekki netfanginu hérna með okkur svo við getum skoðað ;0)
Ausa paus

10.1.04

já innilega til hamingju með prinsinn :) við verðum að fara að sjá myndir kveðja Björk
hæ hæ ég er komin inn gaman að geta talað eitthvað við ykkur !!!!
Til hamingju með litla stubb Ásta!!! þú verður nú að senda okkur myndir af litla Mása þínum ;)

Sammála þér, er sko alger Jón fan núna og rosalega hissa að Anna Katrín datt ekki út í kvöld, hvað er að þjóðinni??? Röddin brást henni ekki bara einu sinni eða tvisvar.... þetta var nú einum of. En það virðast margir ætla að standa með henni í gegnum súrt og sætt s.s. ekki verið að spá í hæfileikana þar. Annars held ég að Kalli vinni þetta nú alveg örugglega og kannski á hann það bara skilið. Jón sagðist líka stefna á annað sætið og vonandi fær hann það.

Kv, Sirrý Idolisti

9.1.04

Ja... veit nú ekki hvað verður um dugnaðinn á þessum bæ.... hann virðist alltaf láta bíða eftir sér. Ég geri bókstaflega ekkert annað en að borða eitthvað óholt þessa dagana. Er með mikið æði fyrir svona útlenskt muffins sem er keypt í Nettó umm.... voðalega gott með kaffi. Einnig er rosalega góð súkkulaðieftirréttur sem við bökum stundum á þessum bæ... mikið gert af því þessa dagana og borðað að kvöldi til með ís namm.... namm... Svo á ég frosið eplapæ sem ég stelst nú í öðru hvoru, átti sko að vera fyrir gesti en ég gat bara ekki staðist að smakka smá á henni. Já og ekki má gleyma Sörunum.... þær eru ótrúlega góðar með pilsner þegar verið er að horfa á sjónóið.

Jæja sé nú að það þarf eitthvað að breytast á þessum bæ, veit ekki hvort viljinn sé til staðar.

Kv, Sirrý

Nú þegar jólin eru búin er helsta tilhlökkunarefnið sumarbústaðaferðin. Þetta er alveg sérlega tilvalinn tími ársins fyrir svona upplyftingu, annars væri svo langt til sumarsins. Nú verður maður að vera svakalega duglegur svo að maður eigi þessa ferð alveg örugglega skilið.
kiss kiss
Auður

8.1.04

Hæ hæ
ég gerðist svo frek að búa til aðgang fyrir Björk og Ástu til að allir hafi aðgang.
Nú er að sjá hvort þær muni líka taka þátt.
kv,
Auður
Úff nú þarf að fara að byggja sig upp fyrir að skilja drenginn eftir án mömmubrjósta yfir heila helgi. Mar... bara alveg með hnút í mallanum (roðn), kem sko samt.

Kv, Sirrý

7.1.04

shit sidan vill ekki isl. stafi hvad er ad ske??
Hæ hæ
Nú er ég búin að laga það sem var vandamál hjá henni Guðrúnu með að skoða allt sem búið var að skoða.
Ég er líka búin að gera aðgang handa �stu og Björk, þær fá allar upplýsingar á maili frá mér.
Nú hafa allir meðlimir saumó aðgang að síðunni.
kv.
Auður

6.1.04

Jæja var ekki gott að borða hjá Bryndísi í gær, saknaði ykkar mikið en þó mest kræsinganna hennar :) Ég á að halda janúarsaumó er það ekki? Væri sko alveg til í að halda saumórinn frekar snemma kannski í næstu eða þarnæstu viku - Er það ekki góð hugmynd?

Var eitthvað ákveðið með bústaðinn? Ég var reddý við símann í allt gærkvöld ef þið vilduð spjalla inná MSN. Vona bara að samkomulag hafi náðst.

Kv, Sirrý

5.1.04

halló

4.1.04

hæ hæ
Það var gaman hjá okkur sem mættum í Partý til Guðrúnar á föstudag.
Það var mikið stuð á Bryndísi, vonandi var hún ekki of þunn í gær.
Ég var kvefuð og slöpp í gær, ekki þunn. Var svo með matarboð fyrir familíuna í kvöld og geri allt annað en að ganga frá sem er það sem ég ætti að gera.
kv.
Auður

3.1.04

hæ auður í partíi hjá Gunnu JO AÐ redda inngangi,

2.1.04

Sælar
Vonandi næ ég að sjá einhverjar af ykkur í partyinu hjá Guðrúnu í kvöld, annars mæti ég frakar seitn þar, vegna þess að ég var búin að lofa mér í annað.
Það sama gæti verið upp á teningnum á mánudag, ég er ekki komin með þá tímasetingu á hreint. En ég læt þig vita Bryndís um leið og ég get.
kv.
Auður

31.12.03

Sælar stúlkur
Nú er árið 2003 senn liðið og 2004 tekur við. Viðburðarríkt ár með 3 nýjum fjölskyldumeðlimum, í takt við ártalið. Vonum nú að lukkan verði fjórföld hjá okkur á næsta ári. Þó ekki eigi ég von á að 4 börn verði til 2004. Ekki þá nema að um fjölbura verði að ræða, hmm nei nei.
Ég óska ykkur hamingjuríkra og slysalausra áramóta og munið hlýfðargleraugun sem og eyrnartappana.
Sjáumst á nýju ári heilar og sælar.
bless
Auður

29.12.03

Sælar allar og gleðileg jól.
Nú er ég loksins komin inn í blogg-hópinn :)
Ég er búin að hafa það rosalega fínt um jólin og í dag er algjör letidagur hjá mér.
Ég heyrði í Ástu áðan og það gengur eins og í sögu á þeim bæ.
Heyrumst fljótlega, Inga.
Oj oj þvílíkt veður. Svona veður hefur ekki verið lengi. Sem betur fer á ég ekkert erindi út fyrr en eftir vinnu. Sem betur fer mundi ég eftir að taka með mér hádegismatinn.
Það er samt ansi kalt hérna inni, þetta hús er ekki vel byggt það er gegnumtrekkur í gegnum það. Maður situr hér í úlpunni til að halda á sér hita.
Hlakka til að fara heim eftir vinnu og sitja undir teppi og með kertaljós og hafa það kósí.
Audur

28.12.03

Jæja ég vona að þið allar hafið notið jólanna. Ég er hálf tuskuleg í dag, enda var djammað föstudag og laugardag. Annað eins hef ég ekki gert lengi. Maður er orðin of gamall fyrir þetta, samt engin þynnka, vel af sér vikið ha?
Nú verð ég líklega að safna kröftum fyrir áramótin. hi hi, ef ég nenni einhverju þá.
Hlakka til að sjá ykkur hvenær sem það verður.
kv.
Auður

26.12.03

Ja sko kominn annar prins í hópinn :) Frábært hjá henni Ástu!!! Ragga hefurðu heyrt eitthvað meira í Ástu, hvort þetta var fæðing eða keisari?

Bið að heilsa öllum og gleðileg jól!!!

Jólakveðja, Sirrý

23.12.03

Jæja stúlkur mínar sama hvort við erum tilbúnar eður ei, nú koma jólin.
Ég er ekki tilbúin og verð að taka til næsta klukkutímann til að það sé allt þokkalegt og að ég þurfi ekki að gera allt á morgun eftir vinnu.
Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og njótið þeirra.
kv
Auður

22.12.03

Jamm þetta nýja máltæki vekur mikla lukku allstaðar.
Sem sagt héðan í frá er sagt ef maður er blankur:" Ég á ekki krónu fyrir gatið á mér" hi hi ;0)

Ég verð að fara að gera út á þessa orðheppni mína!
Svo er Ragga að segja okkur sögu af Auði (sem er auðvitað frábær.. hehe....., hún toppar mig sko alveg örugglega í klaufaskap), en ekkert að minnast á sitt klúður, skamm... skamm.... Ragga mín. Ég gæfi þér ekki leyfi í mína hrærivél nema með tryggingarvíxilinn tilbúinn til taks.

Jæja er í þessum töluðu orðum að hlaða inn myndum á heimasíðu litla stubbs ef þið viljið skoða, rosakrútt auðvitað.


Jólastússkveðjur, Sirrý

20.12.03

Hvað breyttist? (roðn) Ég held að allt sé eins hjá mér, eða kannski er ég bara svona fattlaus eitthvað, gæti sko vel verið.
Jæja stelpur mínar hvernig fannst ykkur Idolið? Eruð þið sátt við úrslitin? Mér fannst Helgi alltaf mjög góður í undanrásunum en því miður ekkert búinn að vera spes í úrslitunum svo hann mátti alveg fara að mínu mati. Get nú ekki annað en verið svolítið pirruð útaf uppljóstrun Önnu um jólasveininn og skóinn :S Þetta mátti sko alveg klippa út og reddingarnar ekki nægilega góðar að mínu mati.

Kv, Sirrý sem trúir enn á jólasveinana... þrátt fyrir ruglið á Stöð 2

19.12.03

Hæ hæ
datt í hug að fikta og breyta útlitinu.
kv.
Auður

18.12.03

Ég sem ætlaði að taka jólaundirbúningnum í rólegheitunum og sleppa frekar að gera hluti en að stressa mig yfir þeim.
Nú er ég að uppgvötva að ég á heilmikið eftir að gera sem verður að gerast. Nú er allt í einu tíminn orðinn takmarkaður og allt of margt sem ég á eftir að gera.
Hvað maður getur verið klikkaður stundum.
Ég þarf sem sagt að fara að kýkja í búðir til að finna þær jólagjafir sem ég keypti ekki í september. Ogg ég nenni ekki í búðir á þeim tíma sem ég hef tíma. Ef þig skiljið hvað ég á við, á háannatíma, þegar það er of mikið af fólki í búðum.
En hvað um það, verð að gera þetta, helst í dag svo ég sé laus.
kv.
Auður
Jæja krúttin mín hvernig gengur jólaundirbúningurinn hjá ykkur? Eru ekki allir að farast úr stressi núna? Hér er allt í ótrúlega rólegu standi, aldrei þessu vant hef ég nægan tíma fyrir jól og ekkert stress í gangi. Ótrúlegt en satt þá er ég samt ekki búin með meira en vanalega en af fenginni reynslu þá reddast þetta allt og meira en það. Ég er að byrja að hræra í köku núna á eftir og síðan á að klára að skrifa á kortin.

Jólakveðja, Sirrý

17.12.03

Skemmtileg mismæli...


Það er ekki hundur í hettunni (það er ekki hundrað í hættunni)
*Það er ljóst hver ríður rækjum hér (það er ljóst hver ræður ríkjum hér)

*Þetta er ekki upp í kött á nesi (...ekki upp í nös á ketti)
* Mér er nú ekkert að landbúnaði...
* Allt fór afsíðis sem gat farið afsíðis...
* Þessi peysa er mjög lauslát...
* Þau eiga þvílíka myllu, lifa eins og greifingjar og leika á als
eggi...
(Geri aðrir betur...)
* Hann sló tvær flugur í sama höfuðið...
* ...þarna hefði ég sko viljað vera dauð fluga á vegg...
* Ég sá svo sætan strák að ég fór alveg fram hjá mér...
* Ég var svo þreyttur að ég henti mér undir rúm...
* Hann sat bara eftir með súrt eplið...
* Og, nú, góðir farþegar, er einmitt fengitími melóna...
* Ég hreinlega vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að setjast...
* Þar stóð hundurinn í kúnni... (Þar lá hundurinn grafinn... Þar stóð
hnífurinn í kúnni.)
* Maður fer í bæinn til að sjá sig og sýna aðra...
* Svo handflettir maður rjúpurnar...
* Já, fólk núorðið er svo loðið á milli lappanna...

16.12.03

Auður:
Sælar stúlkur, ég spjallaði um það' við hana Röggu í gær hvort hún hefði tíma í föndurkvöld í kvöld.
Ég hafði hugsað mér að tékka á ykkur öllum með það, en ég get það ekki sjálf í kvöld því mamma var að bjóða mér í mat til að halda upp á afmælið hans Barkar bróður míns.
Svo ég bið að heilsa ykkur í bili.
Ragga mín þér er velkomið að halda þessum aðgangi þar til annað kemur í ljós. Við verðum bara að bæta nöfnunum okkar við svo hægt sé að halda okkur aðskildum he he.
kv.
Auður

15.12.03

hvað segirðu Auður má ég hafa aðganginn þinn úr því að ég kom mér ekki inn sjálf??? Ég og Bryndís erum að fara að baka sörurnar í kvöld,ég veit satt að segja ekki hvernig þetta endar þvi ég sef frekar lítið þessar næturnar. Ætli það endi ekki með að ég sofi öll jólin??? En ykkur að segja fór ég á ball með Todmobil á laugardagskvöldið og það var bara æði. og eins og Dagrún vinkona mín sagði að það væru aldeilis tíðindi að ég færi út 2 sinnum í sama mánuðinum:) Heyrumst
ja hérna. kom að því að ég get tjáð mig, þökk sé Auði. En það gekk ekki áfallalaust. jæja nú þurfið þið að standa ykkur í að skrifa því annars skrifa ég ykkur í kaf(kjafta ekki í kaf) hahaha ég er svo fyndin.
Kveðja Ragga

14.12.03

Ég væri sko alveg til í að koma í föndur en því miður er svo rosalega margt planað hjá mér núna þessa dagana (sörubakstur á morgun nammmmm....). Ef þið ákveðið einhvern dag þá reyni ég að koma ef ég mögulega get.

Kv, Sirrý

12.12.03

Jæja stelpur er ekki neitt fjör í ykkur?
Ég vona að jólaundirbúiningurinn gangi vel hjá öllum.
Eru þið kannski allar á kafi í verkefnum. Hvernig er það er einhver ykkar til í smá föndurkvöld um helgina?
Mig langar nefnilega að fara að föndra eitthvað en nenni því varla ein.
kv.
Auður

9.12.03

Týndi því sem ég skrifaði grrr, hætti bara núna.
Já við verðum endilega að koma stelpunum inn, gott að geta spjallað svona saman (ekki eins formlegt og e-mail). Þekki þetta Bryndís, nú er klukkan 01:21 á þessum bæ og ég á fullu í tölvunni - getið ímyndað ykkur hvernig ástandið verður á mér á morgun :(.
Hvernig er það.... er hægt að setja inn myndir og svoleiðis hér?..... er sko alls ekki nægilega dugleg við fiktið.

Kannski maður fari núna að sofa
Kv, Sirrý

8.12.03

hæ hæ
Ég held ég bíði með að senda aftur mail á Ingu og Björk vegna anna í skólanum, við skulum ekki freista þeirra frá próflestri.
Ég býst við að Ragga reyni aftur í dag. Hún er búin að fá annað boð, sér einkaboð.
Ég sendi líka aftur á Ástu í gær hún getur þá kannski verið memm. En er ég með rétt mail hjá Guðrúnu, ég er ekki viss með það!!
Bryndís eða Sirry þið vijið kannski reyna að senda aftur á hana.
Sem sagt, meldið ykkur inn skoðið flipana ofaná og skiptið í kaflann settings, og members. Þá sjáið þið hvað þið getið gert.
kv.
Auður
Þessi minnti mig á ákveðið atriðið hérna um árið, þess vegna varð ég að setja hann inn hérna.
" hvað skýrði blondínan Zebrahestinn?"
hmmm þögn
" hann hlýtur að heita Depill!"

kv.
Doppa í röndóttu náttfötunum.
Frábært, ég sé það að ég má ekki senda boð á 3 í einu þó boðið sé upp á þann möguleika, ég veit ekki af hverju.
Nú eru 3 komnar inn og 5 vantar, ég sendi stök boð aftur á allar svo að þetta virki sem best. Komi upp vandræði við skráningu þá sendið mér endilega línu og ég sendi aftur.
Vanalega þegar svona síður eru settar upp, þá er sá sem setur upp síðuna stjórnandi (administrator) en hefur þann möguleika að láta þá sem bætast við hafa þau völd líka. Sem sagt, hér verða allar með aðgang að öllum möguleikum síðunnar, þar með talið útlitsbreytingum og öðru fikti. Ég vil ekki stjórna þessu neitt bara koma öllum inn og svo ræður mæðraveldið.
Ég hvet allar til að fikta mikið og reyna að finna út hvernig við komum inn myndum og linkum.
kv. Auður

4.12.03

Eitthvað er þetta nú líkt þér :) hehe... (nefið mitt hefur nú fengið að kynnast þér). Já ég gæti ekki unnið með eitthvað svona heitt, er með allt of marga þumla til þess... Er núna að handssauma svona litlar fígúrur með pallíettum- púff..... föndur er ekki mín helsta sérgrein. Ég þykist vera rosalega dugleg svona heima í fæðingarorlofi en það gegnur nú víst ekki allt of vel. Dóri tók sig til og þreif alla eldhúsinnréttinguna í gær, sá ekki fram á að ég gerði bofs :( , svo sem skiljanlegt hjá honum.

Jæja þarf nú að fara að hugsa um krílin mín tvö...

Bæjó, Sirrý
Sauður get ég verið, ég ´fór að bræða kertavax fyrir kerti í gærkvöldi og var svo klaufaleg að u.þ.b 1/2 líter af bræddu kertavaxi helltist niður og út um allt.
Þvílíkt vesen, eyddi stórum part kvöldisins í að hreinsa þetta af gólfinu og innréttingunni.
Sleppti að hreinsa fötin mín, það þarf ég að gera þegar ég kem heim. Lovely, ég set hérmeð allt kertavesen í bið þar til eftir jól.

3.12.03

Brrrr, það er ansi mikið rok úti og það er svo gott að vera komin heim og geta haft það bara nokkuð huggó heima. Kveikja á kertum og elda (til tilbreytingar).
Nenni ekki að taka til eins og planið var fyrir þetta kvöldið.
Bið að heilsa ykkur og vonast til að fara að sjá meira af ykkur hér á síðunni!!
kv.
Auður

2.12.03

Frábært þá er þetta að virka, hefur enginn ykkar hinna fengið boðið til að taka þátt??
Velkomin Sirrý, ég er alveg hissa á því hvað þú ert lengi að jafna þig, eins lítið og þú borðaðir, hi hi hi.
Ég er að vesenast í jóladóti, nei ég er ekki farin að skreyta ennþá. Mamma vildi hreinsa til í jóladótinu. Ég fékk nánast helminginn af því sem hún átti.
Þar á meðal, jötu sem að ég átti víst hvort eð er. Sem var keypt handa mér fyrstu jólin mín. Frábært.
En núna er ég að fara í gengum þetta og reyna að koma þessu betur fyrir í kössunum áður en ég tek upp úr þeim aftur á næstu vikum. Ég er kannski skrýtin en ég vil ekki hafa allt jólaskrautið í gangi strax.
Ég sé á MSN að Bryndís er að baka, myndarleg húsmóðir það!!
Vonandi heyrum við frá fleirum hérna á næstunni.
kv.
Auður
Hæ hæ, ég er komin inn!!!

Já jólahlaðborðið var rosa gott, er enn að jafna mig eftir ofátið....

Kv, Sirrý