2.4.06

afmælin okkar

Inga er svo dugleg að setja upplýsingar á þessa síðu okkar. Nú eru afmælisdagarnir komnir inn, og ég verð að viðurkenna að ég hafði aldrei pælt í því fyrr að Inga er sú eina af okkur sem á afmæli ein. Þ.e.a.s. allar aðrar deila mánuði með einhverri. Svo Inga á enga afmælismánaðarsystur í saumaklúbbnum. uss verðum við ekki að bæta úr því og bæta einni við í klúbbin sem er fædd í júní líka hehe. Jæja Inga mín nú ert þú búin að sjá til þess að við sjáum á þessari síðu hvenær þú átt afmæli, sem er eins gott. Því undanfarið hefur þú sett inn afmæliskveðjur til allra, alltaf með allt á hreinu.

Ég var í Gullfoss í þessum norðangarra í dag, það var nú soldið kalt svo ég var svakalega happy með fóðruðu buxurnar mínar og almennt það að vera velklædd á meðan kanarnir voru svona frekar ílla klæddir á heildina litið. Eins og við segjum oft við þessa túr hesta, það er ekki til vont veður bara illa klætt fólk he he. Í næstu viku fæ ég svo nýju 66° peysuna mína með nafninu mínu ísaumuðu .

1 ummæli:

Björk sagði...

hæ hæ flott að fá afmælisdagana inn en ég held að við þurfum ekki að bæta neinni við Inga er bara einstök og fín eins og hún er :)
ertu alltaf á flakki Auður mín?
þá er gott að vera vel klæddur
kv Björk