27.12.05

Gleðileg jól

Gleðileg jól og takk fyrir kortin.
Ég er búin að hafa það rosalega fínt, búin að liggja í algjörri leti, borða, lesa og gera hreinlega ekki neitt. Vona að við heyrumst eða hittumst fljótlega.
Jólakveðjur
Inga María

26.12.05

Gleðileg jól elskurnar!

Sælar stúlkur
Ekki er nú mikið líf hér inni, ég vona að þið hafið allar haft það gott yfir jólin og notið hátíðar ljóss og friðar.
Vonast til að heyra frá ykkur fljótlega.
Doppa

13.12.05

Pac man

Hver setti þessa linka hérna inn, varst það þú Inga, þetta er alveg að fara með mig! Ég var aldrei í Pac man á sínum tíma en nú er ég fallinn í pac man æði. Ég er kannski að ýkja en ég er búin að eyða allt of miklum tíma í þetta. Er bara orðin ansi góð á stuttum tíma hehe, náði 9700 stigum. Er alltaf að reyna að slá þessu við og fá 10 þúsund stig en næ því ekki.
Ég hef aldrei verið mikið í tölvuleikjum almennt, nema kannski kapal eða hvað heitir það nú aftur með fallandi kubbunum, já Tetris, allavega hef ég stundum dottið í einföldu leikina.
kv.
pac man doppa.
p.s. ég leit við í góða hirðinum um daginn og rakst þar á Pictionary á 200 kall, greip það náttúrulega með, en komst svo að því að það er á ensku, svo það er kannski ekki hver sem er sem við spila við mig he he.

3.12.05

eru allir að drukkna í aðventunni ?

hæ hæ ég er sú eina sem skrifar eitthvað hér.
Hvernig var saumó hjá Ástu, mættu margar?
Voru einhverjar djúsí kjaftasögur?
Hvenær er næsti saumó?
Vonandi missi ég ekki af honum líka

30.11.05

Í tilefni jólaundirbúningsins

Ég var að spjalla við kunningjakonu mína um daginn um jólagjafastressið og þá kom fram sú hugmynd að endurvinna gjafir. Þ.e.a.s. að nýta eigin gjafir sem henta manni sjálfum ekki endilega, í gjafir handa öðrum. Stundum hentar það ágætlega þegar ættingjar þekkja mann kannski ekki næginlega til að vita hvernig smekkurinn er og annar ættingi hefur kannski þann smekk sem aðrir halda að maður hafi sjálfur. En það verður að fara varlega og fólkið má ekki þekkjast of vel svo ekki komist upp um mann. Frétti ég af konu sem vanalega sendi tengdamömmu gjöfina sem mágkonan sendi henni og öfugt. Mágkonan og tengdamamman töluðust hvort eð er ekki við. Eitt árið var hún hins vegar að flýta sér og hafði pakkað inn gjöfunum á nýtt og víxlaði þeim óvart. Þannig að dömurnar fengu aftur það sem þær höfðu gefið henni. Sem sagt það er sælla að gefa en þiggja he he.

24.11.05

Smá hugmynd

Ég var að spá í að við þyrftum að taka Guðrúnu í kennslustund í blogginu, koma henni aftur inn hérna. Og hugsaði ég líka út í það að við þyrftum að finna út úr því hvað veldur kínverskunni hjá Ástu! Niðurstaða þessara pælinga var að líklegast væri best að stofna nýja síðu, svona msn my spaces, eins og Inga er með. Þar er auðveldara að setja inn myndir og ýmsir aðrir fítusar eru þarna til að gera þetta auðveldara, svo var Ásta einhverntímann að tala um að við þyrftum að kenna henni á msn, sem sagt msn gengur á mac þannig að við leysum kínverskuna líka?

er ég bara ein hérna eða hvað?

Ég veit að hvorki Ragga né Sirrý eru á landinu, þær eru farnar að skemmta sér í Köben með Dóra. Líklega er Inga að drukkna í skólanum, Guðrún kemur aldrei hérna inn, Ásta er í vandræðum með að komast inn á bloggerinn því hún fær síðuna bara á kínversku. Þá eru bara barbie og björk eftir, hvað segið þið stelpur? Nú ætti Ásta bráðum að fara að halda sinn saumó!!, þarf kannski að minna hana á það?
kv.
Auður

21.11.05

í tilefni tveggja undanfarinna helga ;0)


Partítröll

Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.

Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur.

Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.

Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.

Hvaða tröll ert þú?

15.11.05

Kalt

Mikið rosalega er kalt úti í dag. Mér finnst meira gaman að svona kulda ef það er raunverulegur snjór úti líka. Þá væri hægt að fara út að ganga í snjónum.

14.11.05

takk fyrir komuna

Já það varð lítið úr verki í gær verð ég að viðurkenna, maður er ekki eins fljótur að ná sér eins og á yngri árum. Ég fann undarlegan marblett á upphandleggnum og man ekki til þess að hafa rekið mig í. Hmmm
Ég hitti Dóra áðan hann hló bara þegar ég spurðist fyrir um líðan Sirrýar. Vonandi finnur hann pössun og kemst á föstudaginn til Guðrúnar. Ég steingleymdi að taka myndir, mér skilst að einhver hafi tekið myndir af einhverjum undarlegum stellingum á meðan ég var á baðinu eða í eldhúsinu. Endilega sendið mér myndir ef þið tókuð einhverjar.
Hlakka til að sjá ykkur næst
kv.
Doppa

13.11.05

Takk fyrir mig

Kærar þakkir fyrir mig Auður.
Ég skemmti mér rosalega vel í gær og ég vona að þú hafir gert það líka. Maður er svona pínu dofinn í dag en það er alveg þess virði. Sjáumst.
Kveðja,
Inga María

11.11.05

party party

Nei Inga mín
Síðan dugar ekki til, ég hringdi svo í hinar og staðan er sú að
Þú, Björk, Ragga, Guðrún og Sirrý koma, Ásta kemst ekki og Bryndís kannski og þá seint.
Annars eru nú líka fleiri því þetta er ekki bara Saumó heldur er þetta afmælisdjamm. En þó eingöngu kellingar. Ef þið hafið einhverjar óskir varðandi tónlist, þá takið hana bara með.
kv.
ein í stuði

PARTÝ

Hæ
Ég er sko komin í djammgírinn, verður ekki örugglega PARTY???? Klukkan hvað eiga svo herlegheitin að byrja ca. Hlakka til að hitta ykkur í þessum gír - langt síðan við höfum dottið almennilega í það saman!!!

Það eru engin almennileg viðbrögð við partýinu á þessari bloggsíðu ;( hefurðu eitthvað heyrt í hinum skvísunum? Ég hélt að við værum svoddan partyanimal í þessum saumaklúbbi ;) en við verðum a.m.k. fjórar og það verður sko rosa stuð hjá okkur, ekki satt
Stuðkveðjur,
Inga

9.11.05

PARTY

Ég óttaðist að það gæti farið svo að ekkert yrði úr þessu þar sem ég varð slöpp í gær, hélt ég væri að fá flensu. Núna er ég nokkuð viss um að þetta er ekki flensa bara helv. nefkvef með ennis- og kinnholubólgum sem ég er nokkuð viss um að ég þoli nú. Ég ætla að hafa teiti á laugardag sama hvað !!!
kv.
Auður

7.11.05

Afmæli

hæ hæ
ég er að hugsa um að halda Partý á laugardaginn næsta því ég á afmæli og þá verður maður að gera eitthvað skemmtilegt, hvað segið þið, eru þið til í Kellingapartý??
kv.
Auður

6.11.05

Eitthvað að frétta stelpur?

Sælar stelpur!

Hvað er að frétta? Hvernig var í bústaðinum Ragga og hvernig var úti hjá þér Auður? Ég trúi ekki öðru en það hafi verið rosa gaman hjá ykkur báðum. Ég sit núna yfir tölvunni og er að reyna að vinna í enn einu verkefninu mínu og er aðeins að eyða tímanum í eitthvað annað ;) Þessi törn hjá mér verður væntanlega búin nk. föstudag, jibbíí - get ekki beðið. Hlakka til að heyra frá ykkur stelpur. Vona að Ásta hafi séð að hún á saumó næst annars verðum við bara að meila á skvísuna.
Kv. Inga

19.10.05

Ég var búin að sjá þetta

Ég var búin að sjá þetta áður Inga, ég var á báðum áttum hvort ég ætti að hlæja eða gráta.
Dæmi hver fyrir sig, þetta skýrir sig sjálft þó að ekki kunni maður tungumálið, það er það merkilega við þetta video. En ég veit ekki hvort að um einelti var að ræða, ég skildi sem svo að um þátt um læknamistök hafi verið að ræða.

Boemerang

Stelpur þið verðið að kíkja á þetta. Þetta er bæði það fyndnasta og það allra, ALLRA VANDRÆÐALEGASTA sem ég hef séð!

Þetta er myndbrot úr "hvar eru þeir núna" þætti, svona belgískur Sirrý/Oprah þáttur. Þáttastjórnandinn er að taka viðtal við mann sem hefur verið lagður í einelti frá því hann var lítill og flestir í salnum hafa við sama vandamál að stríða. Þáttastjórnandinn var rekinn eftir þáttinn því hann þótti ekki taka málefnið mjög alvarlega!!!

saumó á laugardagskvöld

hæ hæ
Þá er það loksins komið, ég get haldið saumó á laugardagskvöld. Það er eina kvöldið sem ég get það það sem eftir lifir mánaðar (nema í kvöld en það er of stuttur fyrirvari).
Allavega helmingur getur mætt, ein kemst ekki og er ekki búin að heyra í þremur.
ss. sjáumst á laugardagskv.

17.10.05

Október saumó II

Jæja varðandi það hvenær ég get haldið saumó, ég stakk upp á föstudag en ef þið hafið kýkt á kommentin þá eru Inga og Barbie búnar að minna mig á Idolið, s.s. föstudagur er ekki góður.
Þá stakk ég upp á fimmtudag, en nú var ég að fatta að ég er boðin í boð hjá bláa lóninu á fimmtudag. Hvernig litist ykkur á laugardags eða sunnudagskvöld?