Hæ skvísur og Gleðilegt sumar
Ég var að reyna að komast inn á bloggið til að skrifa um daginn en netið var eitthvað fúlt út í mig því ég gat loggað mig inn en komst aldrei inn á síðuna okkar :(
Af mér er ágætt að frétta, búin að vera dugleg síðustu tvær helgar að fá mér aðeins í glas. Vorum í matarboði aðra helgina og hina fór ég og hitti ÓÓ konurnar (makar Óskabarna Óðins - mótorhjólaklúbb Eyþórs) og það var rosalega gaman. Nú tekur hinsvegar alvaran við því prófin byrja hjá mér á miðvikudaginn oohhhh. Mér leiðast próf. Planið er hinsvegar að vera búin í prófunum 10. maí og klára SÍÐASTA verkefnið fyrir 13. maí (það er svokallað heimapróf) helst fyrr.
Síðustu vikuna er ég búin að vera einstæð móðir því Eyþór kom rétt heim til að sofa og var svo farinn aftur kl. 8. Það var nefnilega verið að breyta búðinni hjá honum og það er búið að vera ekkert smá törn, vinna frá 8:30-23/24 eða lengur. Í gær var hinsvegar búðin opnuð aftur og ég er mjög spennt að fara á eftir og sjá breytinguna.
Nóg í bili, nú ætla ég að fara að einbeita mér að náminu, ég er búin að vera alltof dugleg að festast á netinu. Þetta er hræðilegt, má bara alls ekki hafa kveikt á tölvunni því þá er ég komin á flakk. Ég er hinsvegar að æfa mig í Excel þannig ég verð að hafa kveikt á tölvunni, verð bara að hafa smá sjálfsstjórn :) sem ég hef EKKI!!!!!. Ef ég er ekki á netinu þá er ég á kafi inn í ísskáp, ég kem eflaust rúllandi út úr prófunum, æææææ. Það verður eitthvað tekið á því í sumar. Oooohh ég hlakka svo til sumarsins, enginn skóli, ekkert verkefni, ekkert próf - bara gaman gaman. Ég væri sko alveg til í að skella mér til Spánar með ykkur dömur (Ragga og Bryndís) en það verður að bíða betri tíma. Bið að heilsa ykkur öllum.
Bæ í bili.
kv. Inga