19.3.04

Alveg frábært hreint, ekki nóg með að Borgó sé komin þetta langt. Heldur er aðal atriðið að MR hefur verið steypt af stallinum, jíha.

18.3.04

hæhæ Bryndís TIL HAMINGJU MEÐ BALDVIN ÞETTA VAR EKKERT SMÁ FRÁBÆRT (NÁGRANNARNIR HALDA ÖRUGGLEGA AÐ ÉG SÉ GEÐVEIK ÉG ÖSKRAÐI SVO MIKIÐ) EN BARA GOTT MÁL ! ÁFRAM BORGÓ!!!!!!
kv Björk

17.3.04

Það er nú ekkert dramatískt að gerast hjá mér, ég bara vinn mikið og er farin að finna soldið fyrir því. Er öll að kvefast núna og er frekar að verða slöpp, m. hálsbólgu, hósta og stíflað nef. Má samt ekkert vera að þessu nýbúin með magapest. grr, bíta á jaxlinn og sjá hvort það dugi ekki.
kv.
Auður

15.3.04

hæ hæ
þetta eru hræðilegar fréttir hjá þér Ásta mín og ég skil vel að þú sért stressuð. en hver er Eymundur Ás og Ásta fyrirgefðu forvitnina
Bryndís þetta er allt í lagi það er bara gott að fá einhverja punkta hjá þér ég er komin nokkuð langt þó að það sé alltaf hellingur eftir
kveðja Björk
Elsku Ásta
Og þið allar hinar, ég vildi gjarnan geta verið með ykkur í kvöld.
Mér finnst nóg komið af slæmu fréttunum hjá þér Ásta mín og finnst það ósköp eðlilegt að þú viljir ekki svara í símann. Og vonandi fer að vera bjartara hjá þér.
kv.
Auður

12.3.04

Ég er ekki viss um að ég komist á mánudkv. ég verð líklega að vinna.Ég er komin með aukastarf á kvöldin og um helgar. Ég verð að hliðra vöktum því ég er að fara á árshátíð á laugardag og get ekki unnið á sunnudag. Þess vegna verð ég að vera á mánudag.
Nei og já Björk ég er ekki komin með vinnu í staðinn fyrir aðalvinnuna en er komin með aukavinnu tímabundið með henni.
kv.
Auður

11.3.04

hæ hæ Ragga ég kemst því miður ekki það er starfsmannafundur á mánudaginn:(
Bryndís til hamingju með Baldvin hann stóð sig frábærlega og tekur vonandi MR í nefið eins og hann sagðist ætla að gera.
Hvernig gengur hjá þér Auður mín ertu búin að finna vinnu??
jæja best að fara að læra eitthvað sjáumst
kveðja Björk
Úff... sorrý Ragga mín en ég er að fara á fund útaf gæsateiti Guðnýjar n.k. mánudagskvöld. Ef fundurinn verður ekki langur (kannski ekki miklar líkur á því í svona kjaftaklúbb) þá get ég kíkt til þín.

Kv, Sirrý

10.3.04

já það var svo mikið étið og drukkið að ég bara varð veik eftir að ég kom heim og er ekki farin að jafna mig á þessu ennþá.
Engin smá mega þynnka það, kemur ekki fyrr en á mánudegi og helst fram á miðvikudag, eða var þetta kannski bara ælupestin sem er að ganga hi hi.
Takk fyrir síðast stelpur!!!
Já þetta var sko gaman..... samt ótrúlega rólegar eitthvað miðað við allt magnið af vökva sem kláraðist. Held nú að það hafi verið einhver brögð í tafli þarna. Jæja allavegana var þetta rosalega ljúft og gott að komast aðeins frá skyldum heimilisins. Annars er Dóri mun aktívari húsmóðir en ég..... hann var búinn að skúra allt, þrífa klósettin og setja í nokkrar þvottavélar, fara í ungbarnasund og í afmæli + það að sjá um 4 drengi og fæða þá alla helgina. Ég er rosalega ánægð með afköstin hjá mínum manni. Hlakka bara til að fá hann í fæðingarorlof í apríl..... það verður örugglega glansandi fínt hérna alla daga.
Já og svo var auðvitað yndislegt að koma heim til strákana sinna. Aron Helgi var ekkert fúll út í mömmu sína, bara rosalega ánægður að sjá kellu og þá aðalega brjóstin hennar (það komu svona svipuð hljóð hjá honum og þegar ég borðaði Snickersið í bústaðnum..... svona stunur *roðn*).

Kv, Sirrý sem er farin að hlakka til næsta húsmæðraorlofs

7.3.04

hæ pæ
var ekki mikið fjör og mikið drukkið og talað þið hafið haft nóg um að tala víst að það vantaði þrjár djók
en allavega eruð þið vonandi komnar heim í rigningunni
og rokinu :)
ég er bara búin að læra og búin með verkefnið sem ég á að skila á morgun
það væri gaman að heyra sögur af bústaðnum
bestukveðjur
Björk

4.3.04

Sé núna að Bryndís ætlar að taka með sér partýspilið (var bara að kíkja í póstinn núna *roðn*) svo ég sleppi því auðvitað.

Kv, Sirrý
Jæja nú er ég búin að ákveða hvaða spil ég kem með (það kom enginn með neinar óskir og ég vona bara að það verði ekki tvennt af neinu)

Ég ætla að koma með:
Partýspilið
Viltu vinna milljón (venjulegt)
og Pictionary

Inga ætlar síðan að koma með Sequence

Ef þið viljið að ég komi með einhver fleiri þá endilega láta mig vita

Hlakka til að hitta ykkur á morgun, bæjó

Tilhlökkunarkveðjur, Sirrý
Já talandi um áfengi, Bryndís má alveg taka með sér Heilsuhússpokann minn úr Parýtinu, ertu til í það Barbie darling?
Og enn meir um áfengi, Ragga ég skulda þér alveg böns af rauðvíni frá því hjá henni Guðrúnu, hvaða tegund vilt þú að ég kaupi??
Maður verður að klára öll innkaupin í dag ef að fara á tímanlega af stað á morgun.
Bæjó
Ein í tilhlökkunarstuði.
Ausa paus

3.3.04

Jæja stelpur hvaða spil á ég að taka með? Er nebbla að spá í plássið í bílnum og vil því ekki taka öll með heldur bara þau sem þið viljið.

Kv, Sirrý

P.s. taldi áður upp spilin mín.... það stendur hérna neðar
Jæja stelpur nú eru ekki nema tveir dagar í ferð..... ohh ég er svo spennt.
Nú sit ég við tékklistann og er að uppfæra hann.... alltaf eitthvað sem gleymist. Æji það skiptir svo sem ekki máli ef bjórinn er með.... alltaf hægt að skreppa í Borgarnes og fara nakin í pottinn... hef nú prufað það ;)

Kv, Sirrý spennta

2.3.04

Var einhver búin að ákveða að taka með kaffi og kaffipoka? Hvernig er með CD-spilara er slíkur á staðnum?

Kv, Sirrý
Já dansgólfið eða réttara sagt skórnir mínir tóku sinn toll, þó ekki séu þeir svo slæmir. Allavega er ég ekki farin að fá tilfinningu í sumar tær ennþá uhum.
Hmm já tíminn, ef ég stend mig vel í að pakka og hafa allt til daginn áður ætti ég að komast af stað upp úr 4. Á föstudögum er lítið mál að hætta fyrr. Kristur ég verð að fara að panta þvottahúsið. Ég verð að taka mér tíma í að pakka svo það fari sem minnst fyrir öllu á leiðinni.
En annars hver var staðan með laugardagsmatinn fyrst Guðrún datt út?

Ausa
Takk fyrir síðast stöllur mínar c",)

Já takk takk Bryndís fyrir skemmtilega veislu og lánið á pumpunni (hún virkaði bara vel.... en þetta tók nú sinn tíma). Ég skemmti mér rosalega vel, þæði í partýinu og á Players (þó einstaka lag hafi nú ekki alveg fallið í kramið *roðn*) og hlakka mikið til næsta fjörs með ykkur stelpur. Heilsan daginn eftir var nú samt ekkert sérstaklega góð..... ja eiginlega var ég MJÖG lasin..... með svona magabólgur og mígreni *hóst*.

Ég held við þurfum ekkert að vera að hittast í vikunni..... er ekki allt klárt? Kannski við lesum yfir hvað hver ætlaði að koma með og gerum athugasemdir ef okkur finnst eitthvað vanta..... er það ekki nóg?

Kv, Sirrý sem veit ekki enn hvaða spil hún á að taka með.

1.3.04

Sælar
Mikið rosalega fannst mér gaman í afmælinu. Ég þakka kærlega fyrir mig Bryndís. Lappirnar voru svolítið lúnar eftir hamaganginn á dansgólfinu en það var rosa stuð. Hlakka til að halda áfram næstu helgi :)
Kær kveðja, Inga María