11.3.04

Úff... sorrý Ragga mín en ég er að fara á fund útaf gæsateiti Guðnýjar n.k. mánudagskvöld. Ef fundurinn verður ekki langur (kannski ekki miklar líkur á því í svona kjaftaklúbb) þá get ég kíkt til þín.

Kv, Sirrý

10.3.04

já það var svo mikið étið og drukkið að ég bara varð veik eftir að ég kom heim og er ekki farin að jafna mig á þessu ennþá.
Engin smá mega þynnka það, kemur ekki fyrr en á mánudegi og helst fram á miðvikudag, eða var þetta kannski bara ælupestin sem er að ganga hi hi.
Takk fyrir síðast stelpur!!!
Já þetta var sko gaman..... samt ótrúlega rólegar eitthvað miðað við allt magnið af vökva sem kláraðist. Held nú að það hafi verið einhver brögð í tafli þarna. Jæja allavegana var þetta rosalega ljúft og gott að komast aðeins frá skyldum heimilisins. Annars er Dóri mun aktívari húsmóðir en ég..... hann var búinn að skúra allt, þrífa klósettin og setja í nokkrar þvottavélar, fara í ungbarnasund og í afmæli + það að sjá um 4 drengi og fæða þá alla helgina. Ég er rosalega ánægð með afköstin hjá mínum manni. Hlakka bara til að fá hann í fæðingarorlof í apríl..... það verður örugglega glansandi fínt hérna alla daga.
Já og svo var auðvitað yndislegt að koma heim til strákana sinna. Aron Helgi var ekkert fúll út í mömmu sína, bara rosalega ánægður að sjá kellu og þá aðalega brjóstin hennar (það komu svona svipuð hljóð hjá honum og þegar ég borðaði Snickersið í bústaðnum..... svona stunur *roðn*).

Kv, Sirrý sem er farin að hlakka til næsta húsmæðraorlofs

7.3.04

hæ pæ
var ekki mikið fjör og mikið drukkið og talað þið hafið haft nóg um að tala víst að það vantaði þrjár djók
en allavega eruð þið vonandi komnar heim í rigningunni
og rokinu :)
ég er bara búin að læra og búin með verkefnið sem ég á að skila á morgun
það væri gaman að heyra sögur af bústaðnum
bestukveðjur
Björk

4.3.04

Sé núna að Bryndís ætlar að taka með sér partýspilið (var bara að kíkja í póstinn núna *roðn*) svo ég sleppi því auðvitað.

Kv, Sirrý
Jæja nú er ég búin að ákveða hvaða spil ég kem með (það kom enginn með neinar óskir og ég vona bara að það verði ekki tvennt af neinu)

Ég ætla að koma með:
Partýspilið
Viltu vinna milljón (venjulegt)
og Pictionary

Inga ætlar síðan að koma með Sequence

Ef þið viljið að ég komi með einhver fleiri þá endilega láta mig vita

Hlakka til að hitta ykkur á morgun, bæjó

Tilhlökkunarkveðjur, Sirrý
Já talandi um áfengi, Bryndís má alveg taka með sér Heilsuhússpokann minn úr Parýtinu, ertu til í það Barbie darling?
Og enn meir um áfengi, Ragga ég skulda þér alveg böns af rauðvíni frá því hjá henni Guðrúnu, hvaða tegund vilt þú að ég kaupi??
Maður verður að klára öll innkaupin í dag ef að fara á tímanlega af stað á morgun.
Bæjó
Ein í tilhlökkunarstuði.
Ausa paus

3.3.04

Jæja stelpur hvaða spil á ég að taka með? Er nebbla að spá í plássið í bílnum og vil því ekki taka öll með heldur bara þau sem þið viljið.

Kv, Sirrý

P.s. taldi áður upp spilin mín.... það stendur hérna neðar
Jæja stelpur nú eru ekki nema tveir dagar í ferð..... ohh ég er svo spennt.
Nú sit ég við tékklistann og er að uppfæra hann.... alltaf eitthvað sem gleymist. Æji það skiptir svo sem ekki máli ef bjórinn er með.... alltaf hægt að skreppa í Borgarnes og fara nakin í pottinn... hef nú prufað það ;)

Kv, Sirrý spennta

2.3.04

Var einhver búin að ákveða að taka með kaffi og kaffipoka? Hvernig er með CD-spilara er slíkur á staðnum?

Kv, Sirrý
Já dansgólfið eða réttara sagt skórnir mínir tóku sinn toll, þó ekki séu þeir svo slæmir. Allavega er ég ekki farin að fá tilfinningu í sumar tær ennþá uhum.
Hmm já tíminn, ef ég stend mig vel í að pakka og hafa allt til daginn áður ætti ég að komast af stað upp úr 4. Á föstudögum er lítið mál að hætta fyrr. Kristur ég verð að fara að panta þvottahúsið. Ég verð að taka mér tíma í að pakka svo það fari sem minnst fyrir öllu á leiðinni.
En annars hver var staðan með laugardagsmatinn fyrst Guðrún datt út?

Ausa
Takk fyrir síðast stöllur mínar c",)

Já takk takk Bryndís fyrir skemmtilega veislu og lánið á pumpunni (hún virkaði bara vel.... en þetta tók nú sinn tíma). Ég skemmti mér rosalega vel, þæði í partýinu og á Players (þó einstaka lag hafi nú ekki alveg fallið í kramið *roðn*) og hlakka mikið til næsta fjörs með ykkur stelpur. Heilsan daginn eftir var nú samt ekkert sérstaklega góð..... ja eiginlega var ég MJÖG lasin..... með svona magabólgur og mígreni *hóst*.

Ég held við þurfum ekkert að vera að hittast í vikunni..... er ekki allt klárt? Kannski við lesum yfir hvað hver ætlaði að koma með og gerum athugasemdir ef okkur finnst eitthvað vanta..... er það ekki nóg?

Kv, Sirrý sem veit ekki enn hvaða spil hún á að taka með.

1.3.04

Sælar
Mikið rosalega fannst mér gaman í afmælinu. Ég þakka kærlega fyrir mig Bryndís. Lappirnar voru svolítið lúnar eftir hamaganginn á dansgólfinu en það var rosa stuð. Hlakka til að halda áfram næstu helgi :)
Kær kveðja, Inga María

29.2.04

hæ hæ og takk fyrir síðast þetta var mjög gaman
fannst ykkur ekki dáldið skrítið fólk þarna á players þetta var saman safn af einhverju sem ég veit ekki hvað er HEHE
Ragga mín gangi þér vel að syngja kannski mæti ég (er að reyna að læra eitthvað) núna tekur alvaran við ég á að hitta kennaran ( sem svarar mér aldrei) á morgun hún fékk smá samviskubit vegna þess að ég er búin að skrifa henni síðan í október en hún svaraði ekki fyrr en ég hringdi í hana í janúar og spurði hvort talvan hennar væri biluð:)
kveðja Björk

27.2.04

hæ hæ eru ekki allir í stuði fyrir afmæli aldarinnar :)
ég ætla allavega að sletta úr klaufunum eftir erfiðan hálfan mánuð í vinnuni sjámust
Björk

26.2.04

Úllalla Ragga.... s.s. ekki langt í að við förum að kalla þig Séra Ragnheiður Björnsdóttir.... það passar jú svo vel.
Við verðum bara að taka góða rokkdiska með í bústaðinn og yfirgnæfa predikunina.... ef hún fer að verða of mikil c",)

Kv, Sirrý
ohhh.... jæja Auður mín það er nú hægt að næla sér í aðra drullupest framað bústaðarferð.... ekki vera of viss um að þú sért sloppin (þó ég voni nú auðvitað að svo sé - okkar allra vegna... hehe..).
hmm ég´veit ekki hvort ég á að segja frá þessu, #(roðn)#. Ég er búin að vera soldið slæm í maganum í dag og vindgangurinn eins ílla lyktandi og þarna um árið, úps nú man ég hvað þetta var hræðilegt.
Allavega verður þetta þá búið fyrir ferðina og hana nú. Í þetta sinn skal einhver önnur láta hlæja að sér fyrir líkamsstarfsemi sína.

24.2.04

Ohh... hlakka líka þvílít til en..... var að reikna (þvílíkt klár í því sko) og haldiði að ég verði ekki á sullandi bullandi.... þið vitið :S
Kannski sé ég bara aftur um að redda veitingum í pottinn.

Kv, Sirrý sem ætlar að taka verkjatöflur og bleyjur með í bústaðinn
jamm 10 dagar þar til við förum í bústaðinn, nammi mig hlakkar til.