hæ hæ
Nú er barasta tilhlökkun vegna helgarinnar. Ragga, Guðrún og Sirrý ætla að mæta á Þorrablótið á laugardaginn. Ég er með allt sem þarf, dýnur, sængur, kodda og sængurföt. En hverrri er svo sem velkomið að taka sitt dót með sér ef um er að ræða sérþarfir, s.s. að geta bara sofið með sinn eigin kodda eða e-ð þess háttar. Ríkið er hinu megin við götuna ef fylla þarf á, ég veit ekki hvernig opnunartíminn er þar. Kannski ég fái ykkur til að versla í Bónus fyrir mig á leiðinni, ef mig skyldi vanta eitthvað, þá sendi ég barasta innkaupalista.
Nú þarf mín sko að taka til svo það sé pláss fyrir ykkur.
Sjáumst
2 ummæli:
Skemmtið ykkur ógeðslega vel dúllurnar mínar
bið að heilsa öllum sætum sveitungum Auðar haha
það er reyndar bakarí við hliðina á Bónus þar sem er klósett svo þú þarft ekki að fara á bak við hús greyið mitt
Skrifa ummæli