23.1.07
Köttur og mús
Jæja nú er fyrsta nóttin með köttinn mér við hlið liðin, ég verð að segja að ég svaf ekki mikið. Og kötturinn veiddi ekki neitt. Þetta er soddan kettlingur, ég veit ekki hvort hún kann að veiða. Allavega varð hún alveg ær þegar ég fór að sofa, var á sífelldu flakki og alltaf að hoppa uppí til mín. Sem er ekki vinsælt þegar maður er að reyna að sofa. Svo á endanum ákvað ég að svefnherbergið væri músalaust og lokaði hana frammi. En þá kom paranójan og ég heyrði fullt af óþæginlegum hljóðum, er þetta mús eða er þetta eitthvað annað, ég held að þetta sé snjórinn að bráðna af þakinu.
2 ummæli:
ég keypti bara músafælu maður setur hana í samband og þá heyra mýsnar eitthvað hljóð sem við heyrum ekki og fara þannig að þegar ég fæ þetta get ég bráðum farið í hesthúsið :)
þú ættir að fá þér svona Auður mín ég hef fulla samúð með þér
http://www.jokefrog.com/flash/dear-penis.shtml
Þetta er bara fyndið
Skrifa ummæli