2.9.06

Heimsókn frá meðlimi saumaklúbbsins

Hæ hæ
Ég fékk Guðrúnu í smá heimsókn hér á leið sinni til Akureyrar í gær, hún ætlar að leggja af stað tímanlega frá Akureyri á morgun til að stoppa aðeins lengur. Hún ætlar að taka út heimilið til að sjá hvort ekki sé hægt að halda saumaklúbbshelgi hér.
Annars er mamma og vinkona hennar í heimsókn þessa helgina. Svo að ég hef nægan félagskap hér núna.
Ég vil endilega hitta ykkur í saumaklúbb en ég er búin með óvæntu fréttirnar mínar í vor, það er engin ólétta, þó ég sé þung og magamikil, maður þarf víst að vera við karlmann kennd til þess. ´
bæ bæ
doppa

2 ummæli:

Björk sagði...

gott að heyra að einhver lætur sjá sig þar sem klikkaði alveg á þessu
hafðu það gott auður og bið að heilsa guðrúnu

Doppa sagði...

Reyndar náðum við ekki að hittast á sunnudeginum, einhver misskilningur í gangi, ég hélt að hún myndi hringja þegar hún legði af stað frá Akureyri. Og var svo sjálf á Króknum þegar hún hringdi frá Blönduósi.
;=( en svona er lífið stundum