26.10.04

helllúuu

jæja Inga ég tek þig til fyrirmyndar og skrifa einhver orð hér, maður má nú vera duglegri við þetta. Hvernig leist ykkur nú á brandarann minn, ég var reyndar ekki með email hjá Ástu og Björk og svo fékk ég mailið til baka frá Guðrúnu. Mér fannst alveg stórfyndið að uppgvötva möguleikana sem hugbúnaðurinn sem fylgdi myndavélinni býður upp á.
Nú ætti ég að finna út hvernig maður setur myndir inn á blogg síður.
Ég er annars að fikra mig áfram við að búa til netsíður með Dreamweaver það eru stundum skemmtileg störf þar sem maður þarf að kunna á þetta í boði og maður verður að geta sýnt fram á einhverja kunnáttu svo ég er að gera síðu með ferilskrá minni til að nota í atvinnuleitinni.
Ég hafði dagvinnu hjá Hagstofunni mestann part Okt, en nú er ég bara 6 kvöld í mánuði þar. En ég er líka að gæda eitthvað. Allavega á laugardaginn og svo verð ég að spyrjast fyrir um meira að gera í því á meðan ég leita að vinnu. Ég var í atvinnuviðtali í síðustu viku hjá KHÍ og er að sækja um fullt af öðrum störfum líka. Þetta kemur á endanum.
kv.
Auður

Hæ, hæ

Best að byrja aftur. Þetta er nú hálfgert frat. Ég var búin að skrifa heilmikið og svo gerði ég óvart eitthvað og það datt allt út, týpískt þegar maður ætlar að gera eitthvað og á vera að gera eitthvað annað eins og að lesa fyrir próf ;)

Hvað er að frétta af ykkur, ég er farin að sakna ykkar. Það er hinsvegar geðveikt að gera núna hjá mér, próf og verkefni endalaust. Mér finnst frábært hvað það er mikil stemning fyrir jólahlaðborðinu, ég hlakka rosalega til að fara þó mest til að fara á smá djamm með ykkur ;) Ég komst nú samt að því um helgina að maður þolir ekki orðið að vaka mikið frameftir og fá sér smá í glas. Ég var hjá vinkonu minni í blokkinni á föstudagskvöldið og fengum við okkur rauðvín og smá bjór og spjölluðum fram á rauða nótt, ógeðslega gaman. Hinsvegar var laugardagurinn ekki eins skemmtilegur. Ég þurfti að vakna rúmlega 8, keyra Eyþór í vinnuna og mæta í dæmatíma í skólanum :( Ég var svo ógeðslega þreytt allan daginn að ég man bara ekki eftir að hafa verið svona rosalega þreytt áður. Ég reyndi að leggja mig en náði aldrei að sofna og ég sem þurfti svo að nýta þennan dag vel, það tókst sko heldur betur ekki. Ég ætla semsagt ekki að vakna svona snemma daginn eftir jólahlaðborðið, ég ætla sko að panta að fá að sofa út :) svo maður verði ekki ónýtur allan daginn.
Nóg í bili ég verð að halda áfram að lesa, er að fara í próf á morgun.

Hef ekki heyrt af þessum Saladmaster svo ég muni Auður, var þetta eitthvað áhugavert.
Kv. Inga

23.10.04

Inneignir

Ásta: 1000
Auður: 0
Björk: 1500
Bryndís: 3000
Guðrún: 47
Inga: 1000
Ragga: 3500
Sirrý: 1000

Kv. Inga María

22.10.04

Kynning

hæ hæ
ég var að koma af pottakynningu í heimahúsi, Saladmaster hafið þið einhverntíman heyrt af því?? Þetta er ekki neitt sem ég hef efni á.

kv
Auður

18.10.04

Jólahlaðborð

jæja ég er líka búin að borga veii það verður stuð hjá okkur
kv Björk

16.10.04

Jólaskemmtunin

Sælar stúlkur
Ég er líka loks búin að greiða inn hjá Bryndísi. Þetta verður vonandi stuð aldarinnar.
kv.
Auður

Jólahlaðborð

Jæja stelpur mínar!!!
Ég er loksins búin að borga inná reikinginn hennar Bryndísar svo við Dóri komum með(jibbý hugsa nú auðvitað allar:). Já ég varð víst að bíða eftir verkfallsbótunum til að beta borgað inná svo..... hver veit hvernig fer með afganginn :s... það kemur í ljós.

Hilsen,
Sirrý

14.10.04

Jólahlaðborð

Sælar og takk fyrir síðast. Rosalega gaman :)
Ég er líka búin að borga inn á jólahlaðborðið þannig að ég kem líka með :)
Kv. Inga

2.10.04

jú ég suðaði í ljósmyndaranum en var svo ekki tilbúin svona getur þetta verið :(

1.10.04

Þvílík Hörmung

hæ hæ ég var að kíkja á djamm.is ojbara maður má ekki einu sinni skemmta sér án þess að sjá eftir því ég meina vá !!
ég var að finna valkyrjurnar aftur talvan fór nefnilega í viðgerð og ég tíndi linkinum jæja ég er til í jólahlaðborð (bara ekki á opinberum stað þar sem myndir eru teknar) djók vona að allir gleymi myndavélum um næstu helgi í afmælinu hans Steinar ok!
kv Björk

15.9.04

Sjáumst

sælar
Saumaklúbbur hjá mér á föstudag upp úr átta, allir komast nema Bryndis veit ekki ennþá.

13.9.04

ó ég hélt að þetta hefði ekki tekist áðan sorryyyyyy
kv Björk

hæ hæ

Auður ég kemst báða dagana !!!
leiðinlegt að heyra af kisunni ykkar Ásta
en til hamingju með TÍU ÁRIN vá hvað tímin líður hratttttttttt :)
kv Björk
sjáumst hressar með fullt af sögum vona að allir geti komið

hæ hæ

ég kemst báða dagana föstud og laugard ég man alla vega ekki eftir neinu:)
jæja ég er búin að ákveða að skipta um vinnustað fara á Kópahvol sem er leikskóli nær mér mér líður bara ekki nógu vel á Fífusölum það er allt mjög ruglingslegt þarna síðan aðstoðar stjórinn hætti um áramótinn en Kópahvoll er gamall og ég er orðin þreytt á því að vera á nýjum leikskólum það eru alltaf mannabreytingar og eh. rugl vona bara að það verði gott að vera á Kópahvoli:)
Ása er að fara til Dublin á mánudaginn með U-19 landsliðinu hún verður í viku þetta er alveg ótrúlegt hún var valin í staðin fyrir 18 ára stelpur en hún er mjög spennt fyrir þessu
hún verður bara að vera dugleg að læra áður en hún fer svo hún dragist ekki aftur úr
og mér sem finnst svo leiðinlegt að suða um lærdóm við hana en það verður að hafa það :)
jæja við sjáumst þá hjá Auði vonandi geta allir mætt
kv Björk
ps leiðinlegt að heyra af kisunni ykkar Ásta
en til hamingju með TÍU ÁRIN vá hvað tímin líður hrattttttt

11.9.04

Saumó

Ég kemst á föstudeginum, ekki laugardeginum.
Kv. Inga María

Hvernig er föstudagurinn??

Hæ hæ
Hvernig væri næsti föstudagur fyrir saumaklúbb hjá mér?? Hafið þið tíma?? Eða væri laugardagskvöld betra??
Það væri þá 17 eða 18 sep.
Endilega látið mig vita og ég fer að pæla í veitingum.
kv.
Auður

7.9.04

papaball

hæ hæ
það var alveg geðveikt á papaballinu bara alltof mikið að fólki en rosalega gaman takk fyrir kvöldið Bryndís, Ragga og Guðrún
Auður mín ég er viss um að þú finnur eitthvað spennandi og skemmtilegt starf fljótlega :)
kv Björk

3.9.04

Atvinnulaus

Frá og með næstu viku er ég ekki lengur starfsmaður Pennans, hvað tekur við er ekki víst. En ég verð með allar klær úti, og í ýmsum aukastörfum til að halda mér gangandi. Ég leita kannski til þín Ragga ef mig vantar e-ð.

30.8.04

hæ hæ

gaman að frétta af ykkur
innilega til hamingju Ragga mín þú stendur þig alltaf svo vel ;)
góður brandari Auður við ættum kanski að skella okkur í golf:)
jæja núna á að taka á því ég byrjaði í dag hjá Báru í leikfimi níu vikna námskeið farin að hugsa hvað ég borða og ég held að þetta verði bara gaman allavega líður mér stórvel eftir fyrsta tíman
það verður aðeins bið á partíinu ég er að bíða eftir því að bræður mínir leggi parketið sem ég keypti svo er ég ný búin að mála stofuna og ganginn og þetta er bara mjög huggulegt finnst mér
ég er búin að vinna í eina viku eftir 6 vikna frí sem var bara mjög fínt og rólegt
jæja bið að heilsa öllum
kv Björk

Golfslys

Tvær vinkonur voru saman í golfi þegar önnur varð fyrir því óhappi að hitta
kúluna illa í upphafshöggi og horfði með skelfingu á eftir kúlunni sem
stefndi á hóp karlmanna. Kúlan lenti inni í miðjum hópnum og einn maðurinn
féll til jarðar haldandi báðum höndum á milli fótanna, greinilega
sárþjáður.
Vinkonurnar hlupu til mannanna og þegar þær komu að hópnum hélt maðurinn
enn
höndunum á milli fótanna.
Sú sem hafði slegið kúlunni baðst afsökunar og bauð fram aðstoð. Maðurinn
vildi ekki að svo stöddu þiggja aðstoð og sagðist jafna sig eftir smá
stund.
Konan þráðist við, sagðist vera sjúkraþjálfari og vildi fá að þreifa aðeins
á manninum. Maðurinn lét tilleiðast og fékk hún hann til að leggjast á
bakið
og tók hendur hans frá og renndi buxnaklaufinni niður og byrjaði að nudda
hann rólega. Eftir smástund spurði hún manninn hvernig honum þætti þetta.
Maðurinn svaraði því til að honum þætti þetta mjög gott en hann væri enn að
drepast í þumalfingrinum.