26.10.04

helllúuu

jæja Inga ég tek þig til fyrirmyndar og skrifa einhver orð hér, maður má nú vera duglegri við þetta. Hvernig leist ykkur nú á brandarann minn, ég var reyndar ekki með email hjá Ástu og Björk og svo fékk ég mailið til baka frá Guðrúnu. Mér fannst alveg stórfyndið að uppgvötva möguleikana sem hugbúnaðurinn sem fylgdi myndavélinni býður upp á.
Nú ætti ég að finna út hvernig maður setur myndir inn á blogg síður.
Ég er annars að fikra mig áfram við að búa til netsíður með Dreamweaver það eru stundum skemmtileg störf þar sem maður þarf að kunna á þetta í boði og maður verður að geta sýnt fram á einhverja kunnáttu svo ég er að gera síðu með ferilskrá minni til að nota í atvinnuleitinni.
Ég hafði dagvinnu hjá Hagstofunni mestann part Okt, en nú er ég bara 6 kvöld í mánuði þar. En ég er líka að gæda eitthvað. Allavega á laugardaginn og svo verð ég að spyrjast fyrir um meira að gera í því á meðan ég leita að vinnu. Ég var í atvinnuviðtali í síðustu viku hjá KHÍ og er að sækja um fullt af öðrum störfum líka. Þetta kemur á endanum.
kv.
Auður

Engin ummæli: