24.2.07

Sumarbústaðarferðin

Jæja ég var ákveðin í að reyna að setja inn ferðasöguna eina ferðina enn, svo er nú bara fullskrifaða útgáfan í vinnutölvunni svo það bíður betri tíma. Í staðinn set ég eina skemmtilegustu myndina frá þessari helgi, he he. Útskýringa er kannski þörf en við skulum láta það bíða betri tíma þar til við höldum myndakvöld. Ég á fullt af skemmtilegum myndum frá síðustu árum, hmmm.

19.2.07

ég komst inn

hæ hæ ég er kominn inn bara að deila þessu með ykkur
kv Björk snilli

16.2.07

9-11 feb 07

nú kemst ég inn en bloggerinn vill ekki birta annálinn, kannski verð ég að skrifa allt upp aftur til að það birtist???

13.2.07

Takk fyrir síðast

Sælar stúlkur
Og takk fyrir síðast helgin var mjög skemmtileg. Ég er búin að senda ferðasöguna til Röggu, hún ætlaði að klára að skrifa hana og senda mér aftur til að setja inn á bloggerinn, þar sem hún á í vandræðum með að komast inn. Ég held að ástæðan sé þessi breyting á Blogger sem veldur því.
En jæja systir hennar skutlu kom víst í heimsókn í nótt, allavega var mús í gildru í morgun. Ég get því ekki sannfært sjálfa mig lengur um það að ég sé músalaus.
Mér hryllir einstaklega við þessu og er búin að fá nóg.

7.2.07

2 dagar til stefnu

jippy jæ jó, það eru bara 2 dagar eftir í Sumarbústaðaferðina, ég er farin að setja ofaní tösku...
Allavega ég þarf að komast að því hvenær þið ætlið að leggja af stað, og hvernig ég kemst að bústaðnum, ætti ég kannski að reyna að hitta á ykkur við Grábrók eða hvað ?
Ég verð bara að hringja í Gunnu til að komast að þessu öllu saman.

5.2.07

Skipulagning sumarbústaðaferðar

Við höfum gert þetta svo oft, alltaf spáð og spekúlerað hvað á að taka með. Svo ég fór aðeins yfir gamalt blogg og sá gamla lista yfir dót til að taka , færslur frá 21.2.04, 08.03.05 og 21.01.06, við kýkjum bara á þessar færslur og vitum hvað vantar.

30.1.07

Sumó

jæja nú fer að líða að þessu :)
eigum við að ákveða hver fer að versla ?
eða er það kokkurinn Guðrún á einhver að fara með henni eða hvernig eigum við að hafa þetta
ein spennt
Ragga ég var í smá vandræðum þurfti að skrá nafn og lykilorð áður enn ég sá valkyrjurnar þá kom það

23.1.07

Köttur og mús

Jæja nú er fyrsta nóttin með köttinn mér við hlið liðin, ég verð að segja að ég svaf ekki mikið. Og kötturinn veiddi ekki neitt. Þetta er soddan kettlingur, ég veit ekki hvort hún kann að veiða. Allavega varð hún alveg ær þegar ég fór að sofa, var á sífelldu flakki og alltaf að hoppa uppí til mín. Sem er ekki vinsælt þegar maður er að reyna að sofa. Svo á endanum ákvað ég að svefnherbergið væri músalaust og lokaði hana frammi. En þá kom paranójan og ég heyrði fullt af óþæginlegum hljóðum, er þetta mús eða er þetta eitthvað annað, ég held að þetta sé snjórinn að bráðna af þakinu.

18.1.07

Verið velkomnar á Blönduós

hæ hæ
Nú er barasta tilhlökkun vegna helgarinnar. Ragga, Guðrún og Sirrý ætla að mæta á Þorrablótið á laugardaginn. Ég er með allt sem þarf, dýnur, sængur, kodda og sængurföt. En hverrri er svo sem velkomið að taka sitt dót með sér ef um er að ræða sérþarfir, s.s. að geta bara sofið með sinn eigin kodda eða e-ð þess háttar. Ríkið er hinu megin við götuna ef fylla þarf á, ég veit ekki hvernig opnunartíminn er þar. Kannski ég fái ykkur til að versla í Bónus fyrir mig á leiðinni, ef mig skyldi vanta eitthvað, þá sendi ég barasta innkaupalista.
Nú þarf mín sko að taka til svo það sé pláss fyrir ykkur.
Sjáumst

17.1.07

Þorrablót

Hverjar ætla að koma á þorrablót á Blönduósi um helgina?

13.1.07

Bústaður

hæ hæ
Ég fann heimasíðu verkstjórafélagsins Þórs, þar eru myndir af bústöðunum utan frá. En engin nánari lýsing reyndar. Svo ég hef eina spurningu, er heitur pottur við þennan bústað?

11.1.07

Sumarbústaður

Hæ!!
Ég kem, veit ekki hvort ég verð yfir nótt en kem a.m.k. á laugardeginum með drenginn. Var í vandræðum með að kommenta Bloggerinn vildi ekki leyfa mér það þannig ég varð að gera nýja færslu.
Kv. Inga

8.1.07

Saumó

Sælar skvísur

Ég ætla að halda saumó á miðvikudaginn n.k. 10. janúar.
Hlakka til að sjá ykkur.
Kv. Inga María

27.12.06

nhmm

Ég er búin að senda sms á línuna og spjalla við Guðrúnu, Björk og Röggu. Fyrst sýndist mér föstudagur vera ágætis hugmynd, en nú veit ég ekki, fimmtudag getur Bryndís ekki, fös getur Inga ekki og líklega Guðrún ekki heldur. Bryndís og Ragga kæmu seint, Ásta er fyrir norðan og Sirry er ekki búin að svara neinu. Líklega hefði kvöldið í kvöld verið best, bara að ég hefði reynt þetta fyrr.

24.12.06

Jól

GLEÐILEG JÓL
STELPUR MÍNAR OG HAFIÐ ÞIÐ ÞAÐ
ÓTRÚLEGA GOTT ALLAR
KV BJÖRK

21.12.06

Að gera upp gamlar skuldir

Jæja stúlkur, ég hefði nú átt að halda saumó í Júní svo ég skulda einn á þessu ári. Ég auglýsti í sms eftir lausri stofu og Björk bauð sig fram. Ég er reyndar ekki búin að tala við hana um nákvæma útfærslu á þessu en s.s. að öllum líkindum held ég júní saumó milli jóla og nýárs hjá Björk. Hvernig litist ykkur á það ?

19.12.06

Synd

Jæja það er nú gaman fyrir þig Inga að fá alla þessa gesti, en synd að við þurfum að hætta við saumó, kannski er einhver tilbúin til að skipta við þig?
Ég var annars að skoða gömlu færslurnar okkar hér á síðunni, um þetta leiti er bloggsíðan 3 ára gömul. Við höfum nú oft verið duglegri við að skrifa en undanfarið. Ég var að hugsa um að bæta einhverjum stuttum brandara við hérna til gamans en því miður datt mér alls ekkert í hug.

Saumó

Sælar stelpur

Ég verð líklega að svíkja ykkur með saumó milli jóla- og nýárs ;( I'm so sorry.
Tendafaðir minn kemur óvænt til landsins sem er frábært en ég verð að öllum líkindum með fullt hús af gestum þetta kvöld því systir hans Eyþórs og fjölskylda verða einnig hér á landinu.
Var því að spá í að halda saumó sem fyrst eftir áramótin t.d. föstudaginn 5. janúar. Auður hvað verðuru lengi hér fyrir sunnan? - Vil endilega halda saumó meðan þú ert í bænum.

14.12.06

Jólagjafaóskalistinn

Ef einhver vill gefa mér jólagjöf þá vil ég fá eitt stk saumaklúbb, kannski svona milli jóla og nýjárs.
Ef þið getið það ekki þá óska ég mér að fá meiri skrif á þessa síðu.
Ef það er ekki í boði þá má alveg bara hringja í mig, það er flott jólagjöf. Ég ætla nú ekki að vera með neina heimtufrekju en kannski ég sætti mig bara við jólakort. ;0)

20.11.06

Ykkur er boðið

Sælar Stúlkur og Makar, öll sem komast á Jólahlaðborðið
Ykkur er boðið í fordrykk fyrir Jólahlaðborðið heima hjá móður minni á Skúlagötu 44. (Þar verður einnig óáfengt í boði f. bílstjóra, mæður m. börn á brjósti og barnshafandi konur.) Fyrir framan húsið eru bílastæði þar sem bílarnir geta staðið á meðan á borðhald á Argentínu fer fram, þar sem þetta er bara rétt handan við hornið.