1.3.07

myndir/saumó hjá Sirrý

jæja stelpur, ég kemst nú ekki í saumó hjá Sirrý á miðvikudaginn en það gerir ekkert til. Ég er búin að senda disk með öllum myndunum til Sirrýar svo ég verð með í myndasýningunni. Allar þær saumaklúbbsmyndir sem ég á á stafrænu formi setti ég á þennan disk. þ.e.a.s. myndir frá því núna í Sumarbústað, síðast í bústað, afmæli hjá Guðrúnu þarsíðast, Þorrablótið og tvær sem ég var búin að skanna inn. Það má vera að ég eigi til fleiri en það er nefnilega einn harður diskur sem ég á ónýtur og það mun vera erfitt að ná öllum gögnunum af honum, ég bara man ekki hvort ég á saumaklúbbsmyndir á honum. Jú allt í einu man ég þar eru myndir frá því á Jólahlaðborðinu á Broadway um árið. Ég verð að fá allt af þessum disk!!!!! Þessi dæmisaga ætti að kenna ykkur eitt, alltaf að taka AFRIT af tölvugögnunum ykkar. Kannski ég fái að vera með í gegnum MSN og vefkameru eða eitthvað svoleiðis???

1 ummæli:

Björk sagði...

þetta verður mikið stuð alltaf gaman að skoða myndir verst að þú kemst ekki Auður mín

annars er ég bara búin að liggja veik í rúma viku er með vírus í miðeyranu hvað sem það þýðir
en mér svimar allavega frekar mikið
og vona að þetta fari að ganga yfir
kv Björk