14.12.06

Jólagjafaóskalistinn

Ef einhver vill gefa mér jólagjöf þá vil ég fá eitt stk saumaklúbb, kannski svona milli jóla og nýjárs.
Ef þið getið það ekki þá óska ég mér að fá meiri skrif á þessa síðu.
Ef það er ekki í boði þá má alveg bara hringja í mig, það er flott jólagjöf. Ég ætla nú ekki að vera með neina heimtufrekju en kannski ég sætti mig bara við jólakort. ;0)

6 ummæli:

Inga María sagði...

Ég skal gefa þér jólagjöf Auður mín og ykkur öllum. Ég stefni á að halda saumaklúbb milli jóla og nýárs. Hvað segiði um fimmtudaginn 28. des., annars er það bara miðvikudagurinn, föstudagurinn er eiginlega out hjá mér. Endilega lát heyra hvort það hentar.

Björk sagði...

ég mæti líka hentar vel á fimmtud
annars ræður þú bara
sjáumst

Doppa sagði...

Nú er ég glöð, já ég þigg fimmtudaginn 28 með glöðu geði, mig er strax farið að hlakka til.

Björk sagði...

heyrðu Auður mín hvert á að senda jólakortið
veit ekki heimilisfangið þitt
kv Björk

Doppa sagði...

Nú hva, ég hélt það hefði komið fram hér á síðunni,
Aðalgata 5, 540 blönduós
Símanúmerin eru alltaf þau sömu ;0)vink

Björk sagði...

ok