19.9.06

Hæ, hæ

Sælar
Það er allt fínt að frétta af mér. Mikið sparkað og allt í fullu fjöri. Nú eru ekki nema rétt tæpar fimm vikur eftir!!!! Þetta líður hratt en samt finnst mér eins og ég sé búin að vera ólétt forever. Ég er varla að nenna að bíða þessar fimm vikur því ég á svolítið erfitt á nóttunni - er endalaust að bylta mér og svo fylgir þessu a.m.k. ein klósettferð að nóttu til.
Stelpurnar eru alveg rosalega spenntar og geta varla beðið eftir litla bróður. Það er gaman að upplifa þessa spennu hjá stelpunum, þær eiga örugglega eftir að bjarga mér heilmikið meðan ég er í skólanum, hef ekki trú á öðru.
Skólinn gengur bara ágætlega - ennþá, á reyndar eftir að fá verkefnin sem hafa öll mjög svipaðan skiladag eða í kringum miðjan október - vona að ég nái að koma þeim frá mér áður en ég fer upp á fæðingardeild.
Ætlaði svona bara að láta rétt heyra frá mér, vonast til að fleiri hendi inn einni og einni línu.
Heyrumst.

2 ummæli:

Doppa sagði...

það er nú gott að heyra frá þér, gott að vita að allt gengur vel þó það sé eflaust komin þreyta í þig svona á lokasprettinum

Björk sagði...

gaman að heyra frá þér og gangi þér vel bæði með verkefnin og litla krílið