13.12.05

Pac man

Hver setti þessa linka hérna inn, varst það þú Inga, þetta er alveg að fara með mig! Ég var aldrei í Pac man á sínum tíma en nú er ég fallinn í pac man æði. Ég er kannski að ýkja en ég er búin að eyða allt of miklum tíma í þetta. Er bara orðin ansi góð á stuttum tíma hehe, náði 9700 stigum. Er alltaf að reyna að slá þessu við og fá 10 þúsund stig en næ því ekki.
Ég hef aldrei verið mikið í tölvuleikjum almennt, nema kannski kapal eða hvað heitir það nú aftur með fallandi kubbunum, já Tetris, allavega hef ég stundum dottið í einföldu leikina.
kv.
pac man doppa.
p.s. ég leit við í góða hirðinum um daginn og rakst þar á Pictionary á 200 kall, greip það náttúrulega með, en komst svo að því að það er á ensku, svo það er kannski ekki hver sem er sem við spila við mig he he.

3 ummæli:

Inga María sagði...

Ég er víst sökudólgurinn ;) vona að þið hafið gaman af. Ég hinsvegar er föst í Bubbles þessa dagana - þegar ég fæ ógeð á bókunum sem er orðið allt of oft, úps.

Inga María sagði...

Fann tetris og setti inn fyrir þig elskan. Ég er fegin að það eru fleiri en ég sem verða húkt á tölvuleikjum.

Doppa sagði...

æji þú hefðir ekki átt að gera það. Nógu er þetta slæmt með pac man og bubbles.
kv.
doppa