31.1.04

Æji greyjið mitt, léttu nú á fangavistinni og skrepptu í kvöldkaffi einhvert.
Ég fór og fékk mér breiðbandsáskrift, ligg þá á fjarstýringunni eins og ekkert sé. 49 stöðvar er smá breyting frá því sem var.
Ég var líka svo dugleg að bora og setja upp hillu í forstofunni í vikunni.
kv.
Auður

29.1.04

Ég er að kynna mér kostnað við bílaleigur, því miður eru stóru bílarnir aldrei á tilboði. Ég tékkaði á Avis á netinu, þar kostaði 7 manna bíll yfir helgi 28200, án Kaskó, 30700 með.
Aðrar voru ekki með nothæfar síður, sem sagt best að hringja

28.1.04

Nú lánaði Bryndís bróðir sínum gáfurnar,hi hi.

25.1.04

Takk fyrir síðast stelpur!!!

Til hamingju með brósa þinn Bryndís mín... hann er greinilega með gáfurnar hennar systur sinnar.
Það var smá misskilningur hjá mér með hvað lambasteik þetta var sem ég var svona hrifin af en þetta er víst VSOP frá Hagkaup en ekki koníakssteik frá SS. Já rétt skal vera rétt ekki satt?

Kv, Sirrý

24.1.04

Til haminju með lille bror Bryndís.
Og Guðrún til hamingju með að vera komin inn.
kv.
Auður
hæ hér er ég.KV Guðrún

23.1.04

Hæ hæ og takk fyrir síðast alltaf jafn gott að borða hjá Sirrý ummmm
til hamingju með Baldvin bróður þinn Bryndís þeir stóðu sig ótrúlega vel fáum við þá að sjá hann í sjónvarpinu??
kveðja Björk
Well my dears
Einhverjar ykkar gátu ekki farið inn á eldri pósta.
Besta leiðin til þess er að fara inn á síðuna sjálfa, þ.e. www.valkyrjur.blogspot.com og sjá þar efst í hægra horninu eru tölur sem minna á dagsetningar.það eru eldri póstarnir, líka um hrærivélina. Þarna er allt geymt sem skrifað er inn á síðuna skypt niður eftir tímabilum. Ef það er bara klikkað á eitt tímabilið kemur það upp og það er hægt að lesa það.
kv.
Auður

22.1.04

Hlakka til að sjá ykkur á morgun ;)

Kv, Sirrý sem er ekkert að drepa sig í undirbúningi *hóst*

21.1.04

ég skal koma með þér Auður ef þú hringir bara á undan þér ok?
kv Björk
Okey þar með er það ákveðið, ég skal vera á bíl. Hver kemur með mér og hvenær á ég að sækja ykkur.
Auður

20.1.04

Glæsó stelpur mínar þetta verður þá fimmtudaginn. Vona að allar sjái þetta :)

Kv, Sirrý
hæ hæ ég væri mjög fegin ef ég fæ far með einhverjum
kv Björk
Sirrý. Ég kemst á fimmtudaginn :)
Ég er alveg til í að fá að fljóta með einhverjum í bíl en ég get líka verið á bil ef þess þarf.
Kv. Inga
Mér sýnist þetta vera að hallast að fimmtudeginum, Ásta ég skal senda þér mailin á maili. Þarf ekki endilega að vera á síðunni.
kv.
Auður

19.1.04

Ja.... miðvikudag eða fimmtudag :S það er spurning??? Ég var svona að vonast til að Guðrún kæmist á fimmtudaginn en komst því miður ekki til að hringja í hana í kvöld eins og ég ætlaði (var í bíó). Hvernig er það Inga, verður æfing hjá Eyþóri? Það mundi henta mér betur að hafa þetta á fimmtudagskvöldið en reddast alveg á miðvikud. Björk kemst bara alls ekki á miðvikud. og helst vill ég að allar komist auðvitað.

Kv, Sirrý
Jæja stúlkur eigum við ekki að reyna að nýta bílana upp á Skaga?
Ég verð á múttubíl næstu 6 vikurnar, svo að ég get verið bílstjóri.
Sú gamla skellir sér til Kanarí á morgun og verður þar í allavega 6 vikur. Gott hjá henni.
kv.
Auður
Bryndís!!!

Jæja hvernig gekk nóttin? Var sú stutta ánægð í sínu herbergi?

Kv, Sirrý

18.1.04

Já ég setti þetta upp fyrir Guðrúnu en hún var ekki inni í herberginu að fylgjast með, ég hélt líka að það væri betra ef hún færi í þetta edrú. Svo ég skrifaði nákvæma lýsingu um það hvernig hún ætti að fara að þessu. Hún skrifaði einu sinni HALLÓ, svo henni tókst að komast inn einu sinni svo að það er kannski bara smá feimni við tölvuna hún þarf kannski einhvern til að halda í hendina á sér á meðan hún prufar sig áfram.
Sirrý, það er ekki alveg víst með fimmtudaginn hjá mér - Eyþór er á hljómsveitaræfingum þá en hann veit ekki alveg hvort það verður næsta fimmtudag. Ég læt þig vita en haltu endilega saumó á fimmtudaginn, mér sýnist að flestar komist þá :)
Kv. Inga María