6.4.05


Systur Posted by Hello

Mæðgur  Posted by Hello

30.3.05

Hæ, hæ

Sælar skvísur og gleðilega páska
Ég var að kíkja á hver á að halda saumó næst: Ásta - mars
Björk - apríl
Guðrún - maí
Inga - júní
sumarfrí í júlí

Af mér er svosem ekkert að frétta er bara að drukkna í verkefnavinnu. Skilaði tveimur í dag, einu á morgun og svo er próf á laugardaginn. Get ekki sagt að ég hafi notið þess að vera í "fríi" en þetta fer að verða búið. Hlakka bara til að sjá ykkur, vonandi fljótlega.
Kær kveðja,
Inga María

26.3.05

hæ

hæ Auður ég á því miður engar dýnur heldur.
Bryndís til hamingju með Baldvin þetta var frábært alltaf gaman að fylgjast með gettu betur
gleðilega páska stelpur mínar
kv Björk

Dýnur

Sæl Auður mín.
Ég samhryggist þér innilega.
Ég á því miður engar auka dýnur en ég á tvær tvíbreiðar vindsængur ef það getur hjálpað og þér er velkomið að fá þær lánaðar.

Kær kveðja og gleðilega páska
Inga María

23.3.05

hæ

Ég kem heim aftur á laugardag. Það verður ágætt að fá smá rólegheit áður en öll familían kemur svo til íslands fyrir minningarathöfnina. Við mamma flytjum í íbúð vinkonu hennar á meðan og þau verða öll í okkar íbúðum. Þá vantar okkur 3-4 dýnur. Á einhver gestadýnur til að lána okkur?
Heyrumst síðar
kv.
Auður

13.3.05

Auður

Góða ferð Auður mín og gangi þér vel ég bið innilega að heilsa mömmu þinni við sjáumst eftir páska láttu heyra í þér þegar þú kemur heim.

við vorum mikið í pottinum og spiluðum smá svo var singstar sem ég er ekki mjög góð í þó það komi verulega á óvart
kveðja Björk

hæ

Ég vona að þið hafið skemmt ykkur vel í bústaðnum um helgina, þið fenguð aldeilis veðrið til þess.
Ég flýg í fyrramálið til Svíðþjóðar og verð þar fram yfir páska.
kv.
Auður

9.3.05

Stemming

er ekki komin steming í hópinn??
ég er allaveg mjög spennt vona að það verði geðveikt stuð hjá okkur
kv Björk
ps. munið eftir sundbolum

8.3.05

Shopping

Við Bryndís erum búnar að mæla okkur mót til innkaupa á fimmtudaginn, er eitthvað sem ykkur vantar/ langar sérstaklega í, sem við eigum að kaupa.
Hugmyndir að morgunmat, t.d. er eitthvað sem þið verðið að fá í morgunverð eða meigum við ráða? Hvað viljið þið snarla? Allar hugmyndir velkomnar.
kv.
Auður

7.3.05

4 dagar til stefnu

hæ hæ
ég skrifa hér til minnis það sem mér dettur í hug í augnarblikinu:
annað en matur sem þarf að taka með og við getum keypt eða tekið með að heiman?
Klósettpappír (just in case?)
Servéttur/ eða eldhúsrúllu
kerti
kaffipokar
ísmolar


tókum við einhverntíman viskustykki með?
þarf að hugsa um eitthvað eldhúsdót, einhver tæki og tól sem eru ekki til á staðunum og þarf að taka með?
tónlist, geisladiskar, er tæki á staðnum?
þurfum við fleiri spil, pictionary, trivial eða annað?
bara smá pælingar
Auður

3.3.05

Afmælis kveðja

Til hamingju með afmælið Bryndís mín þó seint sé (ég er svo utan við mig)
og til hamingju með bróður þinn áfram Borgó:)
sjáumst í kvöld
kv Björk

saumó í kvöld

öhh m á hann að vera hjá Röggu eins og segir í sms inu sem ég fékk í gær, ég er að vinna en kem eins fljótt og ég get, svona um 10
kv.
Auður

2.3.05

saumó fimmtudag

Ég kem.
Kv. Inga

1.3.05

til hamingju

sælar
ég varð síma og netsambandslaus í gær, þó ég væri lítið sem ekkert heima þá truflaði þetta mig mikið. Ég var einmitt búin að hugsa svo sterkt til þín Bryndís en svo tók þetta símamál alveg athyglina frá öllu öðru.
Ég heyri bara frá ykkur hvað þið ákveðið á miðvikudag, ég er svo meðfærileg.
Nú og svo get ég nú alltaf komið eftir vinnu í smástund, við erum ekki lengur eins þaulsætnar og við vorum á yngri árum.

kv.
Auður

Afmæliskveðja

Innilega til hamingju með afmælið Bryndís mín.
Ég sem hitti þig í dag og gleymdi alveg að óska þér til hamingju með daginn en betra er seint en aldrei.

Kær kveðja,
Inga María

24.2.05

Saumó

ég kemst á miðvikud
kv Björk

Kemst ekki á miðvikudag

Hæhæ
Ég kemst því miður ekki í saumó á miðvikudag í næstu viku. Ég er að vinna í HS þá vikuna mán, þri. og miðvikudag frá 5-10.
Ég er að fara á fund á mánudagskvöldið og hef ekki efni á að missa meira en eina vakt út í heilli viku.
kv.
Auður

23.2.05

skype og saumó

hæ, það er ingaogeythor ekki & :)
Ég geri mitt besta til að koma á miðvikudaginn en næsta vika er algjört horror - það á að skila hvorki meira né minna en 5 verkefnum þá vikuna þetta er alveg ótrúlegt, reyndar svolítið lýsandi hvernig sl. vikur eru búnar að vera en ekki þó alveg svona slæmar.
Hlakka til að sjá ykkur.
Kv. Inga

skype

já og ég er með audur_sig