8.2.05

Gangi þér vel

Gangi þér vel Auður mín ég vona að þetta sé happa dagur
kv Björk (ennþá lasin)

Ammælistelpur

Elsku Ragga
Til hamingju með afmælið, ég var bara allt of upptekin af sjálfri mér til að fatta afmælið þitt eitt árið enn :0( ég er ekki góð í þessu. Það er bara allt of mikið af afmælum í febrúar í kringum mig.
Svo ég óska þér Björk til hamingju fyrirfram líka áður en ég gleymi því.
Annars er ég að fara í atvinnuviðtal í fyrramálið svo vonandi er afmælisdagurinn þinn happadagurinn minn.
bæjó
Auður

7.2.05

Afmælis kveðja

hæ hæ
til hamingju með afmælið Ragga mín loksins búin að ná mér :)
jæja ég ætlaði að kíkja á Ingu Maríu á laugardaginn en hef örugglega farið í vitlaust hús eru þið ekki númer 22 ??
kv Björk (lasna)

26.1.05

Takk

Vá en sætt takk Auður mín
kv Björk

Ása Dögg frábær árangur

Til hamingju með Ásu Dögg, Björk mín.
Það er mikils virði slík viðurkenning að hún fái hana tvö ár í röð. Einhvern daginn verður hún íþróttamaður ársins. Það er ekkert smá sem þú hefur alið upp vel heppnað barn Björk.
Þetta er nú líka svolítið viðurkenning á þínu góða uppeldisstarfi, fyrst það eru engar verðlaunaafhendingar fyrir uppalenda eða foreldri ársins þá verður þú bara að taka viðrukenningar dóttur þinnar svolítið til þín ekki satt.
kv.
Auður

25.1.05

greitt

hæ hæ ég er búin að borga fyrir bústaðinn
Ása fékk bikar í viðurkenningu fyrir góðan árangur á þessari hátíð (hún fékk líka svona í fyrra) Rúnar Alexanders (gerplu) og Elísabet Haralds (dans) voru íþróttafólk kópavogs
ok hlakka til að fara í bústað og mér líst vel á saumaklúbba skiptinguna
kv Björk

greitt

Hæ, ég er búin að greiða fyrir bústað :)
Kv. Inga

24.1.05

Sumarbústaður

Ég er búin að leggja inn á þig Bryndís mín. Hlakka mikið til ;)

Ragga: Þú ætlar að sleppa árshátíðinni fyrir okkur elskan...er það ekki?

Kv, Sirrý

Borgað

hæ hæ
Ég er búin að greiða inná hjá þér Bryndís.
kv.
Auður

23.1.05

bústaður og dagsetningar Saumó

Hæ hæ
Skv. fundinum í kvöld ætlum við að reyna að halda okkur við helgina 11-13 mars með bústaðinn. Inga og Bryndís ætla að ath. með lausa bústaði í fyrramálið og láta okkur svo vita hvernig fer.
Í sambandi við saumaklúbbana þá var ákveðið að setja þá í stafrófsröð og að fyrstu 3 í stafrófinu eru þá með 2 klúbba á árinu. Með smá tilbrigðum. Af því að Bryndís var búin að segjast taka febrúar áður en uppástungan kom og af því að Inga og ég kláruðum Janúar þá byrjar stafrófið í mars á Ástu. Semsagt:
2005
Jan: Auður
Feb: Bryndís
Mars: Ásta
Apríl: Björk
Maí: Guðrún
Júní: Inga
Júlí: Frí
Ágúst: Ragga
Sept: Sirrý
Okt: Auður
Nóv: Ásta
Des: Björk

Og svo rúllar það áfram þannig að 2006 heldur svo svona áfram.
2006:
Jan : Bryndís
Feb: Guðrún
Mars: Inga
Apríl: Ragga
Maí: Sirrý
Júní: Auður
Júlí: Frí
Ágúst: Ásta
Sept: Björk
Okt: Bryndís
Nóv: Guðrún
Des: Inga

Hittingur

Hæ ég kemst ekki í kvöld ég er að fara á íþróttamann ársins í kóp
þið látið mig bara vita hvernig gengur
kv Björk

22.1.05

hittingur

Hæ, ég kem. Látið mig bara vita kl. hvað ef að því verður. Ég stoppa eflaust ekki mjög lengi því við erum á fullu að vinna í nýju íbúðinni :).
Kv. Inga

P.s. Getiði sent mér SMS því ég verð lítið heimavið til að tékka á bloggsíðunni.

21.1.05

Hittingur?

Hæ
Það er ekkert að breytast í minni stöðu eins og stendur.
En annars hvernig væri að hittast aðeins til að kýkja á sumarbústaðamálið og ákveða betur hver er með næstu saumó. Ég sting upp á að hittast hjá mér á sunnudagskvöld ef þið hafið tíma.
Látið mig vita!
kv. Auður

20.1.05

Áfram Borgó

hæ hæ til hamingju með bróðir þinn Bryndís frábært hjá þeim
Inga María eru þið ekki búin að fá íbúðina ? er verið að flytja ?
Hvað er að frétta af þér Auður mín?
hvernig er með bústað?
kv Björk

Straumar og bústaður

Sælar
Ég sendi ykkur einnig góða strauma.

Ég ætla einnig að forvitnast með sumarbústaðinn!!! Fékkstu bústað Bryndís? og þá hvaða helgi.
Kv. Inga María

16.1.05

Æji stelpur mínar!!! Voðalegt er að heyra þetta með mæður ykkar Björk og Bryndís og systur þína Auður. Ég sendi ykkur góða strauma og vona að allt gangi nú vel.

Bústaður:
Ég er til í hvað sem er, Grímsnesið eða bara það sem er laust. Annars er Dóri í skólanum helgarnar 4. - 6. febrúar og 4. - 6.mars þannig að þær helgar gætu orðið erfiðar fyrir mig. Veit ekki betur en ég sé laus allar aðrar helgar.

Kv, Sirrý

15.1.05

hæ

Hæ Auður leiðinlegt að heyra að þú hafir fengið slæmar fréttir ég vona að þú komist út sem fyrst og allt fari að ganga betur hjá systur þinni
kv Björk

bústaður já endilega

hæ hæ
já endilega bústaðaferð, en ég er hálf léleg og get ekkert sagt um dagsetningar. Ég fékk vondar fréttir af systur minni og vil endilega komast til hennar í stutta heimsókn sem fyrst en get ekki leyft mér það strax, því maður er alltaf að bíða eftir svari við atvinnuumsóknum og vill ekki binda sig við eitt né neitt þegar allt er í óvissu. Ég fellst því á hvaða helgi sem er og reyni að hagræða öllu með tilliti til þess.
kv.
Auður

Bústaður

hæ ég fer fermingu á Pálmasunnudag fattaði það bara þegar Ragga minntist á það :)
takk fyrir kveðjurnar ég ætlaði að segja æxli en ekki ægsli ég sá að þetta var eitthvað ekki rétt en svona er ég bara
annars er ég til í allar aðrar helgar
kv Björk

Orlof - dagsetningar

Vona að allt gangi vel hjá ykkur Björk og Bryndís :)

Varðandi sumarbústaðaferðina þá myndi henta mér best af tillögum Bryndísar helgin 11.-13. mars, 18.-20. mars gæti þó alveg gengið en vegna ritgerða og verkefna þá vil myndi ég síður vilja fara í apríl (var ekki búin að pæla í því um daginn). Ég er alveg til í Grímsnesið.

Ég hringdi hinsvegar í VR og það er fullt laust í febrúar og mars en þeir eru ekki byrjaðir að skrá niður pantanir fyrir apríl. Maður hefur tvo daga til að greiða bústaðinn. Getið kíkt á bústaðina hér

Það sem er í boði þar er:
Flúðir (18.-20. feb.,25.-27. feb og 11.-13 mars),
Miðhúsaskógur(sömu helgar + 4.-6. mars),
Vaðnes (4.-6 mars, 11.-13. mars)
Kv. Inga María